Næsta námskeið:21. febrúar - 21. mars
Staðsetning: Vefkennsla
Verð:34.500 Kr.
Ertu með bragðgóða hugmynd?
Á námskeiðinu Matarfrumkvöðullinn farið yfir skrefin fá því að hugmynd kviknar þar til vara er komin á markað. Fjallað er um vöruþróun og það helsta sem hafa þarf í huga áður en lagt er af stað í þá vegferð; hvað standi smáframleiðendum til boða, hvernig sækja eigi um starfsleyfi, stofna fyrirtæki, gera viðskiptaáætlun, gæðahandbók og stefnumótandi áætlanir. Farið er yfir grunnstefið í matvælalöggjöfinni, fjármögnunarleiðir og helstu styrki í boði, kosti og galla ólíkra framleiðsluleiða, verðlagningu, söluleiðir og markaðsmál. Fjallað er um regluverkið í kringum matvælaframleiðslu, uppbyggingu stjórnsýslunnar og hvernig eftirliti er háttað. Farið er yfir uppbyggingu matvælamarkaðarins, ólíkar leiðir til að koma vöru í verslun eða beint til neytenda, þróunina á neytendamarkaði og tækifærin í betri merkingum matvæla.
Námskeiðið er samstarfsverkefni Austurbrúar og Hallormsstaðaskóla. Notast verður við námsumhverfið Learncove og verður námsefnið aðgengilegt þar inni fram til apríl 2023
Að námskeiðinu loknu eiga nemendur að:
Leiðbeinandi: Oddný Anna Björnsdóttir, viðskiptafræðingur, sjálfstæður ráðgjafi, frumkvöðull og framkvæmdastjóri Samtaka smáframleiðenda matvæla og Beint frá býli.
Verð: 34.500 kr.
Félagar í Samtökum smáframleiðenda matvæla fá 10% afslátt af námskeiðinu og kostar námskeiðið þá 31.050 kr. fyrir félagsfólk.
Tíma- og staðsetning: Alla þriðjudaga frá 21. febrúar til 21. mars í fjarkennslu (Zoom).
Síðasti skráningardagur: 20. febrúar.
21. febrúar kl. 09:00-12:00
Vöruþróun – það helsta sem þarf að átta sig á.
Gestafyrirlesarar: Björgvin Þór Harðarson, eigandi Korngrís í Laxárdal og Óli Þór Hilmarsson, verkefnastjóri hjá Matís.
28. febrúar kl. 09:30-12:00
Regluverkið, umbúðir og merkingar matvæla.
Gestafyrirlesari: Freydís Dana Sigurðardóttir, fagsviðsstjóri hjá Matvælastofnun.
7. mars kl. 09:30-12:00
Stjórnsýsla og eftirlit, stofnun matvælafyrirtækis og starfsleyfi.
Gestafyrirlesari: Eva Michelsen, eigandi Eldstæðisins í Kópavogi.
14. mars kl. 09:30-12:00
Þróun á neytendamarkaði og helstu hagsmunasamtök.
Gestafyrirlesarar: Fjóla Rakel Ólafsdóttir, vöruflokkastjóri hjá Krónunni og Gunnar Sigurðarson, viðskiptastjóri hjá Samtökum iðnaðarins.
21. mars kl. 09:30-12:00
Gerð viðskiptaáætlunar, gæðahandbókar og stefnumótandi áætlana.
Gestafyrirlesari: Þórhildur M. Jónsdóttir, verkefnastjóri Vörusmiðjunnar BioPol á Skagaströnd.
Þorbjörg Ólöf Jónsdóttir