Sjálfbærniverkefni Alcoa Fjarðaáls og Landsvirkjunar var komið á til að fylgjast með áhrifum framkvæmda við Kárahnjúkavirkjun og álverið í Reyðarfirði á samfélag, umhverfi og efnahag á Austurlandi. Vöktun hefur staðið yfir frá árinu 2007 en Austurbrú hefur haldið utan um verkefnið frá árinu 2013.
Auk hinna hefðbundnu verkþátta var á árinu 2021 haldið áfram með framþróun verkefnisins. Lögð var áhersla á að uppfæra myndir og samræma útlit á milli vísa. Einnig var unnið að því að gera verkefnið sýnilegra á netinu.
Ársfundur
Þann 20. október 2021 var haldinn ársfundur í fyrsta sinn í 2 ár. Þema fundarins að þessu sinni var jafnréttismál í víðu samhengi og fjölluðu fyrirlesarar á fundinum um jafnrétti frá ýmsum sjónarhornum. Bryndís Elfa Valdemarsdóttir frá Jafnréttisstofu setti jafnrétti í samhengi við sjálfbærni, Tinna Kristbjörg Halldórsdóttir frá Austurbrú sagði frá niðurstöðum rannsókna sem gerðar hafa verið á kynjamyndum á Austurlandi og þau Sturla Jóhann Hreinsson frá Landsvirkjun og Dagmar Ýr Stefánsdóttir frá Alcoa Fjarðaáli fjölluðu um vinnu fyrirtækjanna við aukið jafnrétti og þróun ýmissa verkefna á því sviði. Ársfundinum var í fyrsta sinn streymt á netinu og hægt er að horfa á öll erindi hans á Youtube-rás Sjálfbærniverkefnisins.