Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna ástæður brottflutnings kvenna af Austurlandi með það að markmiði að meta líkur á að þær snúi aftur. Auk þess var reynt að meta hvort tengsl við svæðið hefðu forspárgildi varðandi líkur á að snúa til baka. Spurt var um mat á ýmsum innviðum á þeim stöðum sem flutt var frá, atvinnutækifæri og svo líkurnar á því að flytja til baka. Bakgrunns og persónubundnir þættir eins og aldur, menntun og tengsl við staðinn sem flutt var frá, voru notuð til frekari greiningar.
Rannsóknarspurningin var: Af hverju flytja ungar konur frá Austurlandi? Skipta tengsl við svæðið máli varðandi líkur á að snúa aftur?
Könnunin var fyrst gerð árið 2016 og svo aftur árið 2021. Niðurstöður frá árinu 2016 sýna að konur sem voru fæddar og uppaldar á staðnum höfðu sterkustu tengslin og voru líklegastar til að flytja aftur á staðinn sem flutt var frá. Niðurstöður frá árinu 2021 sýna að þær sem fluttu ungar á staðinn voru með sterkustu tengslin og mestu líkurnar á að snúa aftur.
Lokaskýrslan er nánast tilbúin en ekki er búið að ákveða hvenær hún verður birt almenningi.