Náms- og starfsráðgjöf er mjög mikilvæg þjónusta fyrir einstaklinga á öllum aldri. Þetta á ekki síst við á landsbyggðinni þar sem menntunarstigið er almennt lægra en á höfuðborgarsvæðinu og minna um námsframboð. Náms- og starfsráðgjöf fyrir fullorðna hefur verið sinnt á Austurlandi á vegum Austurbrúar. Samningur við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins veitir Austurbrú fjárhagslegan styrk til að sinna verkefninu.
Hjá Austurbrú eru tveir menntaðir náms- og starfsráðgjafar. Fleiri starfsmenn hafa boðið upp á ráðgjöf s.s. til háskólanema, atvinnuráðgjöf og fleira. Náms- og starfsráðgjafar ferðast talsvert til að koma til móts við ráðþega. Flestar ferðir voru á Reyðarfjörð og þar á eftir Egilsstaði frá Neskaupstað. Alltaf er reynt að koma til móts við ráðþega varðandi staðsetningar viðtala. Frá upphafi covid hafa viðtöl þar sem Teams er notað verið að festa sig í sessi. Ráðþegar og ráðgjafar verða sífellt öruggari í þessu fjarfundaumhverfi og margir kjósa það umfram það að hittast á starfsstöð. Einnig er algengt að ráðgjöf einstaklings sé blönduð í fjarfundi, tölvupóstum, símtölum og með viðtali á staðnum eftir því hvað hentar hverju sinni.
Námsráðgjafi sinnir mikið einstaklingum sem leita til hans að eigin frumkvæði og eftir kynningu á vinnustöðum. Þjónustan spyrst út og margir frétta af henni frá vinum, kunningjum og samstarfsfólki. Eins er aðeins vísað í náms- og starfsráðgjöf hjá Austurbrú í gegnum VIRK, Starfsendurhæfingu Austurlands (StarfA) og Vinnumálastofnun. Langflestir sem leita til náms- og starfsráðgjafa vilja hefja nám, oft eftir langt hlé frá námi. Einstaklingar sækjast t.d. eftir aðstoð við að átta sig á áhugasviði sínu, þeir fá þá viðtal og taka áhugasviðskönnun þar sem niðurstöðurnar eru ræddar út frá fjölbreyttum sjónarhornum. Ýmsir þurfa aðstoð við að skoða hvaða nám er í boði, bæði í framhaldsskóla og háskóla, hvernig menntakerfið virkar, hvað þeir þurfa til að vera gjaldgengir í háskólanám o.fl. Einstaklingar þurfa oft aðstoð við að skoða hvað þeir eru búnir með og hvaða leið er best. Þeir sem eru að skoða háskólanám vilja í langflestum tilfellum búa áfram fyrir austan og sækjast því eftir fjarnámi. Einnig er algengt að einstaklingar fái aðstoð við gerð ferilskrár og jafnframt kynningarbréfs.
Ráðgjafi sinnir einnig einstaklingum af erlendum uppruna sem þurfa gjarnan aðstoð við að átta sig á íslenska kerfinu bæði í mennta- og starfsumhverfi.
Náms- og starfsráðgjafi sinnir hópráðgjöf og heldur námskeið. Árið 2022 hélt ráðgjafi námskeið fyrir skjólstæðinga StarfA, háskólanema á Austurlandi og fyrirtæki í tengslum við fræðsluáætlun. Náms- og starfsráðgjafi kom einnig inn í lengri námsleiðir Austurbrúar með kennslu og ráðgjöf.