Verkefnið var unnið fyrir styrk úr lið A10 í byggðaáætlun Almenningssamgöngur um allt land. Fjölmargir aðilar sinna farm- og/eða fólksflutningum á Austurlandi. Þessir aðilar eru: Skólaakstur, sveitapóstur, Strætó BS – flugrúta, almenningssamgöngur milli þéttbýliskjarna í Fjarðabyggð og almenningssamgöngur á Egilsstöðum og í Fellabæ.
Ýmis tækifæri eru til staðar til að samnýta flutning fólks og farms á Austurlandi. Þau liggja í því að skoða samlegð á ákveðnum leiðum, t.d. hvað varðar póst og skólaakstur í og úr sveitum. Samningsaðilar akstursaðilana eru hins vegar ólíkir aðilar; annars vegar sveitarfélag að sinna lögbundinni þjónustu og hins vegar aðili í rekstri á landsvísu sem er pósturinn.
Í Múlaþingi eru aðeins almenningssamgöngur á Egilsstöðum sem ná yfir í Fellabæ og á starfstíma skóla er farið í Brúarás. Ekki er um að ræða almenningssamgöngur milli þéttbýliskjarna í Múlaþingi en líklegt er að slíkt verði þróað og þar er sóknarfæri að hanna frá upphafi flutnings sem þjónar bæði fólki og farmi.
Vopnafjörður sem jaðarsvæði á Austurlandi er illa tengt hvað varðar almenningssamgöngur og skýrt er kallað eftir þar að úr verði bætt og þá horft bæði til fólks- og farmflutninga.
Nánar um verkefnið