Aukinn sýnileiki
Þrátt fyrir sérstaka stöðu á árinu vegna heimsfaraldursins fengu Austurbrú og Markaðsstofa Norðurlands viðbótarfjármagn frá atvinnuvegaráðuneytinu á árinu 2020 til að auka slagkraft flugvallaverkefnanna með áherslu á sýnileika gagnvart flugfélögum og framleiðslu á markaðs- og kynningarefni fyrir áfangastaðina.
Á Austurlandi var unnið áfram með framleiðslu á styttri myndböndum til kynningar á flugvellinum sem og áfangastaðnum Austurlandi til notkunar á samfélagsmiðlum (á fjórum tungumálum). Einnig var unnið að enn frekari þróun ljósmyndabankans, uppfærslu og þýðingu bæklinga og annars efnis á fleiri tungumál auk þess sem sýnileiki áfangastaðarins á vefmiðlum var aukinn.
Þá var unnið í kynningu á áfangastaðnum og flugvellinum gagnvart innlendum og erlendum ferðaskrifstofum og tekið á móti blaðamönnum eins og aðstæður buðu upp á. Á árinu var einnig stofnað til samstarfs Isavia, Íslandsstofu, Markaðsstofu Norðurlands og Austurbrúar með áherslu á samskipti við flugfélög. Árið var nýtt til að þróa áherslur fyrir verkefnið, tímalínur og sóst var eftir fjármagni svo hægt væri að fara í sérstakt kynningarátak í tengslum við vellina á árinu 2021 eða þegar flugumferð yrði aftur með eðlilegum hætti.
Fulltrúi Austurbrúar situr í stjórn Flugþróunarsjóðs auk þess sem verkefnisstjóri tekur þátt í faghópi tengdum starfi stjórnar. Á árinu var unnið að undirbúningi uppfærslu starfsreglna sjóðsins ásamt því að unnið var að ýmsum áherslum sem snúa að sýnileika Flugþróunarsjóðs.
Á árinu var jafnframt unnið að því að draga sama helstu upplýsingar í tengslum við mögulega fragtflutninga í gegnum Egilsstaðaflugvöll bæði er snertir magn hráefnis og innviði. Horft var sérstaklega til tækifæra í beinum útflutningi á fiski og þá sérstaklega laxi. Rætt var við ýmsa aðila innan flutningageirans og framleiðsluaðila í eldi með það að markmiði að greina tækifærin sem felast í nýtingu Egilsstaðaflugvallar fyrir útflutning. Þá var áherslum fylgt eftir til samgönguráðuneytisins og kallað eftir áframhaldandi umræðu sem hófst á málþingi sem Austurbrú hélt sumarið 2019 undir yfirskriftinni Ferðalag fisksins og ferðamannsins að austan.
Á árinu var unnið að ýmsum málefnum sem tengjast innviðum Egilsstaðaflugvallar. Fylgt var eftir málefnum er snúa að yfirlögn á flugbraut, akbraut sem og öðrum aðbúnaðarmálum. Þá var unnið að greiningum á verðmun á flugsteinolíu á millilandaflugvöllunum og búið til módel til að draga fram helstu stærðir og kostnaðaráhrif á aðila sem hefðu áhuga á að nýta Egilsstaðaflugvöll fyrir millilandaflug. Þá var fylgt eftir þeim áherslum í byggðaáætlun sem snúa að samkeppnisstöðu flugvallarins.
Loftbrúin vígð
Framkvæmdastjóri Austurbrúar tók þátt í vinnuhópi með Vegagerðinni, fulltrúum flugfélaganna og ráðuneytisins og sérfræðingum í stafrænni þróun á árinu 2020 til að útfæra skosku leiðina sem fékk síðan nafnið Loftbrúin. Var Loftbrúin vígð við hátíðlega athöfn í september 2020 á Egilsstaðaflugvelli þar sem framkvæmdastjóri bókaði fyrsta miðann. Mikil ánægja hefur verið með úrræðið og hefur það nú þegar sannað gildi sitt þar sem yngri kynslóðir hafa verið mjög duglegar að nýta þennan nýja möguleika.
Sjá frétt