Ertu reyndur stjórnandi með góða leiðtogahæfileika og innsýn í stjórnsýslu?
Ef þú vilt vinna á þverfaglegum og spennandi vinnustað, þar sem hvatinn er efling Austurlands, þá er þetta starfið fyrir þig. Sterk krafa er um að viðkomandi hafi framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfni og geti leitt ólíka málaflokka og verkefnasvið á árangursríkan, faglegan og skilvirkan hátt.
Leitað er að drífandi og reyndum leiðtoga í stjórnunarstarf sem byggir m.a. á miklum samskiptum við stjórnvöld á öllum stigum stjórnsýslunnar, stofnanir og fyrirtæki í nærumhverfi og á landsvísu, hagsmunasamtök og aðra þá sem tengjast starfsemi stofnunarinnar. Framkvæmdastjóri veitir faglega og stjórnunarlega forystu og starfar í umboði og í samræmi við stefnu stjórna hverju sinni.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Helstu menntunar- og hæfniskröfur:
Austurbrú er sjálfseignarstofnun sem starfar í stoðþjónustu á Austurlandi. Stofnunin er verkefnastofa sem vinnur að framgangi víðtækra og þverfaglegra verkefna í þágu Austurlands. Málaflokkar stofnunarinnar eru byggðaþróun og atvinnumál, fræðslumál, rannsóknir og greiningar, rekstur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og verkefna þess auk reksturs innri mála stofnunarinnar. Starfsstöðvarnar bjóða góða aðstöðu og aðbúnað. Austurbrú hefur hlotið jafnlaunavottun og er EQM vottuð stofnun á sviði fræðslumála og var framúrskarandi fyrirtæki 2022 á lista Creditinfo.
Umsóknarfrestur er til og með 17. nóvember 2024. Umsókn óskast fyllt út á intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Allar umsóknir eru trúnaðarmál og verða nöfn umsækjenda ekki birt opinberlega. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Framkvæmdastjóri getur haft aðsetur á hverri af starfsstöðvum Austurbrúar en búseta á Austurlandi er skilyrði. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veita Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) og Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511 1225. v
Sækja umFrá stofnun hefur Austurbrú unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar, markaðssetningar, atvinnuþróunar og fræðslu. Kynntu þér nýjustu tíðindin!
Skoða fréttasafn