Austurbrú
  • Þekking
    • Námskeið
    • Námsleiðir
    • Háskólanám á Austurlandi
    • Rannsóknir
    • Námsráðgjöf og raunfærnimat
    • Fyrirtækjafræðsla
    • Fullorðinsfræðsla fatlaðra
  • Þróun
    • Atvinnu- og samfélagsþróun
    • Hringrásarhagkerfið
    • Markaðssetning
    • Uppbygging á Seyðisfirði (IS/EN)
    • Menning
    • Áfangastaðurinn Austurland
    • Uppbyggingarsjóður Austurlands
  • Þjónusta
    • Atvinnuþróun og ráðgjöf
    • Fjármögnun og styrkir
    • Háskólanemar
    • Námsráðgjöf og raunfærnimat
    • Samstarfssamningar
  • Austurbrú
    • Um Austurbrú
    • Ársrit 2021
    • Fundargerðir og gögn
    • Fyrir fjölmiðla
    • Gagnasafn
    • Starfsfólk
    • Stjórn og skipulag
    • Störf í boði
    • Senda ábendingu
    • English: About Austurbrú
  • SSA
    • Um SSA
    • Ársrit 2021
    • Fundargerðir og gögn
    • Menningarverðlaun SSA
    • Sóknaráætlun Austurlands
    • Starfsfólk og stjórn
    • Svæðisskipulag
    • Sveitarfélög á Austurlandi
Austurbru

Um Austurbrú

Austurbrú er fyrsta stofnun sinnar tegundar á Íslandi. Markmiðið með henni er að einfalda stjórnsýslu, vera vettvangur fyrir samstarf og samþættingu og vinna metnaðarfullt starf, íbúum Austurlands til hagsbóta.

Hlutverk

Austurbrú vinnur að hagsmunamálum íbúa og veitir samræmda og þverfaglega þjónustu. Verkefni Austurbrúar eru einkum á sviði símenntunar og rannsókna, atvinnuþróunar og markaðssetningar. Þótt ólík séu þjóna þau öll hagsmunum landshlutans og tilgangur þeirra er að stuðla að jákvæðri þróun menntunar, menningar og atvinnulífs á Austurlandi. Austurbrú er með sjö starfsstöðvar og yfir 20 starfsmenn.

Saga

Austurbrú er sjálfseignarstofnun sem stofnuð var 8. maí 2012 á grunni Þekkingarnets Austurlands, Þróunarfélags Austurlands, Markaðsstofu Austurlands og Menningarráðs Austurlands og annast auk þess daglegan rekstur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Yfir 30 stofnaðilar eru að Austurbrú, þ.á.m. öll sveitarfélögin á Austurlandi, allir háskólar landsins, helstu fagstofnanir, stéttarfélög og hagsmunasamtök atvinnulífsins, framhaldsskólar og þekkingarsetur á Austurlandi.

Nánar
Frá stofnfundi Austurbrúar.

Stjórn og skipulag

Stjórn Austurbrúar skal vera skipuð sjö aðalmönnum. Fimm koma af vettvangi sveitarstjórnarmála og eru jafnframt stjórnarmenn SSA. Tveir koma frá vettvangi atvinnulífs, menningar og menntunar. Starfsháttanefnd og siðanefnd Austurbrúar skulu hvor um sig skipaðar þremur fulltrúum sem kosnir eru á ársfundi.

Nánar

Fundargerðir - ársreikningar - ársskýrslur

Fundargerðir stjórnar, ársskýrslur og ársreikningar Austurbrúar eru aðgengilegir hér.

Sjá nánar
Fundarmenn á ársfundi Austurbrúar og aðalfundi SSA 23. júní 2020.
Fundarmenn á ársfundi Austurbrúar 23. júní 2020.

Upplýsingagjöf

Auk fundargerða heldur Austurbrú úti heimasíðunni Austurbru.is þar sem finna má upplýsingar um helstu verkefni sem við sinnum og þá þjónustu sem við veitum. Við höldum einnig úti hlaðvarpinu Austurland hlaðvarp þar sem verkefnastjórar Austurbrúar eru teknir tali. Þá gefum við út metnaðarfull ársrit þar sem varpað er ljósi á okkar helstu verkefni frá ári til árs.

Nánar

Stefnur og verklagsreglur

Austurbrú hefur sett sér stefnu og reglur sem tryggja fagmennsku og gagnsæi í rekstri stofnunarinnar. Stefnan okkar, persónuverndaryfirlýsing, siða- og verklagsreglur eru aðgengilegar hér.

Nánar
Austurbrú
Austurbrú ses.
Tjarnarbraut 39e,
700 Egilsstaðir, Ísland

kt. 640512-0160

[email protected]

  • Austurbrú framúrskarndi
  • ÍST 85
  • facebook
  • Senda ábendingu
  • Persónuverndarstefna
  • Starfsstöðvar
  • kt. 640512-0160
  • 470 3800
  • [email protected]