Hlutverk og viðfangsefni
Austurbrú vinnur að því að Austurland verði staður fólks, fjárfesta og fyrirtækja sem vilja byggja upp sjálfbært samfélag. Veitt er samræmd og þverfagleg þjónustu tengd atvinnulífi, menntun og menningu og unnið að metnaðarfullum verkefnum á sviði háskólanáms og rannsókna, markaðs-, menningar-, nýsköpunar-, atvinnu- og þróunarmála og símenntunar. Verkefnin eru fjölbreytt en þjóna öll hagsmunum landshlutans og hafa þann tilgang að stuðla að framþróun menntunar, menningar og atvinnulífs á Austurlandi.
Austurbrú er með sjö starfsstöðvar og ríflega 20 starfsmenn.
Saga
Austurbrú er sjálfseignarstofnun sem stofnuð var 8. maí 2012 á grunni Þekkingarnets Austurlands, Þróunarfélags Austurlands, Markaðsstofu Austurlands og Menningarráðs Austurlands og annast auk þess daglegan rekstur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Yfir 30 stofnaðilar eru að Austurbrú, þ.á.m. öll sveitarfélögin á Austurlandi, allir háskólar landsins, helstu fagstofnanir, stéttarfélög og hagsmunasamtök atvinnulífsins, framhaldsskólar og þekkingarsetur á Austurlandi.
NánarStjórn og skipulag
Stjórn Austurbrúar er skipuð sjö aðalmönnum. Fimm koma af vettvangi sveitarstjórnarmála og eru jafnframt stjórnarmenn SSA. Tveir koma frá vettvangi atvinnulífs, menningar og menntunar. Starfsháttanefnd og siðanefnd Austurbrúar eru skipaðar þremur fulltrúum sem kosnir eru á ársfundi.
NánarStefnur og reglur
Austurbrú hefur sett sér stefnu og reglur sem tryggja fagmennsku og gagnsæi í rekstri stofnunarinnar. Stefnan okkar, persónuverndaryfirlýsing, siða- og verklagsreglur eru aðgengilegar hér.
Nánar