Efling atvinnulífs á Austurlandi
Markmið verkefnisins er að byggja upp heimamarkað fyrir fyrirtæki í þjónustu og afþreyingu og stuðla að fjölgun starfa. Verkefnið snýst um þrjá meginþætti
- Þróun og hönnun „vildarprógrams“ fyrir íbúa Austurlands sem hvetur til kaupa á austfirskri vöru og þjónustu.
- Kynning á aðstöðu fyrir störf án staðsetningar.
- Skilvirk kynning menningarviðburða í landshlutanum.
Þróun þekkingarsamfélags
Markmiðið er að efla tengsl og virkja mannauð fólks af erlendum uppruna til frekari samfélagsþátttöku sem og efla þekkingu sem styður við stefnumörkun í byggða- og atvinnuþróunarmálum. Verkefnið snýst um þrjú meginverkefni:
- Raddir innflytjenda á Austurlandi.
- Samstarf landshlutasamtakanna í rannsóknum í byggðamálum, áframhaldandi þróun fyrirtækjakannana og greinarbetri upplýsingaöflunar um stöðu atvinnulífsins.
- Ráðstefna um áhrif skipulags og hönnunar á upplifun íbúa og gesta.
Þróunarverkefni á sviði menningar á Austurlandi
Markmiðið er að auka samvinnu við þórun menningarþátta sem og framkvæmd menningarviðburða sem ná yfir allan landshlutann og efla þannig samkennd og staðarstolt íbúa. Verkefnið snýst um þrjú meginverkefni:
- Barnamenningarhátið Austurlands – BRAS
- Dagar myrkurs – sameiginleg byggðahátíð íbúa á Austurlandi
- Matarauður Austurlands
- Áhersluverkefni í menningu á Vopnafirði og Djúpavogi.
Efling Egilsstaðaflugvallar
Markmiðið er að efla starfsemi á Egilsstaðaflugvelli með opnun gáttar fyrir millilandaflug, styrkja flugsamgöngur við Austurland og gera flugvöllinn þannig úr garði að hann geti betur þjónað millilandaflugi og sem varaflugvöllur. Verkefnið snýst um áframhaldandi þróun starfsemi á vellinum, þróun innviða, eftirfylgni með úrbótum o.fl.
Svæðisskipulag Austurlands 2022 - 2044
Svæðisskipulag Austurlands 2022 – 2044 var samþykkt af öllum sveitarstjórnum á Austurlandi haustið 2022. Það markar sameiginlega framtíðarsýn Fjarðabyggðar, Fljótsdalshrepps, Múlaþings og Vopnafjarðarhrepps fyrir landshlutann. Tilgangurinn er að samstilla stefnu sveitarfélaganna á sviði umhverfis, efnahags, samfélags og menningar og tryggja þar með sjálfbæra þróun, komandi kynslóðum í hag. Svæðisskipulagið er langtíma stefnumarkandi áætlun sem framfylgt verður með skipulagsáætlunum hvers sveitarfélags og öðrum áætlunum SSA.
Nánar