Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Austurlands. Við hvetjum einstaklinga og fyrirtæki með hugmyndir á sviði atvinnu, nýsköpunar og menningar til að koma og skoða möguleikana. Verkefnahugmyndir af öllum stærðargráðum eiga erindi.
Hlutverk Uppbyggingarsjóðs er að styrkja menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni sem falla að Sóknaráætlun Austurlands. Auk þess veitir sjóðurinn stofn- og rekstrarstyrki til menningarverkefna. Uppbyggingarsjóður Austurlands er samkeppnissjóður og miðast styrkveitingar við árið 2023.
Vinnustofur verða á eftirtöldum stöðum þar sem hægt verður að fá ráðgjöf og aðstoð við gerð umsókna:
Vinnustofur
Borgarfjörður |
|
Djúpivogur | 27. september kl. 13:00–15:00 í Austurbrú |
Stöðvarfjörður | 29. september kl. 13:00–15:00 í Sköpunarmiðstöð |
Vopnafjörður | 3. október kl. 13:00–15:00 í Kaupvangi |
Vefvinnustofa | 3. október kl. 13:00–15:00 á Zoom |
Neskaupstaður | 3. október kl. 13:30–15:30 í Múlanum |
Reyðarfjörður | 3. október kl. 16:30–18:30 í Austurbrú |
Seyðisfjörður* | 4. október kl. 13:00–16:00 í Tækniminjasafni |
Egilsstaðir | 6. október kl. 13:00–15:00 og 15:30–17:00 á Vonarlandi |
Frá stofnun hefur Austurbrú unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar, markaðssetningar, atvinnuþróunar og fræðslu. Kynntu þér nýjustu tíðindin!
Skoða fréttasafn