Straumhvörf er nýtt vöruþróunarverkefni í ferðaþjónustu sem nær yfir allt Norður- og Austurland og er ætlað fyrirtækjum í ferðaþjónustu og fulltrúum sveitarfélaga. Tilgangurinn er að nýta tækifæri sem felast í auknu millilandaflugi til Norður- og Austurlands og búa til nýjar vörur og vörupakka í ferðaþjónustu. Að verkefninu standa Austurbrú/SSA, Markaðsstofa Norðurlands, SSNV og SSNE.
Undirbúningsfundur á Teams 12. október kl. 10:00, þar sem verkefnið verður kynnt og þátttakendur undirbúnir fyrir næstu skref.Kynningarfundurinn 12. október er öllum opinn og ekki þarf að skrá sig á hann.
Vinnustofur verða á fjórum stöðum þar sem þátttakendur fá fræðslu, ráðgjöf og aðstoð við vöruþróun:
1. Blönduós, 30. október kl. 12:00-17:00
2. Eyjafjörður, 31. október kl. 10:00-15:00
3. Bakkafjörður, 1. nóvember kl. 12:00-17:00
4. Egilsstaðir, 2. nóvember kl. 10:00-15:00
Eftirfylgnifundir á Teams síðar í nóvember. Efnistök ráðast af niðurstöðum úr vinnustofum.
Þátttakendum gefst tækifæri á að kynna tilbúnar vörur í Ferðaþjónustuvikunni í janúar.
Við hvetjum öll sem starfa í ferðaþjónustu til að taka þátt og nýta tækifærið til að efla ferðaþjónustu í sínu nærumhverfi.
Nauðsynlegt er að skrá sig á vinnustofurnar sjálfar og skilyrði fyrir þátttöku fyrirtækja að þau séu aðilar að Markaðsstofu Norðurlands eða Austurbrú. Gjaldið er kr. 5.500 fyrir hvern þátttakanda og eru innifaldar veitingar á meðan á vinnustofu stendur.
Nánari upplýsingar veita Hjalti Páll Þórarinsson hjá Markaðsstofu Norðurlands, [email protected] og Urður Gunnarsdóttir hjá Austurbrú, [email protected]
Upptaka af fundinumFrá stofnun hefur Austurbrú unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar, markaðssetningar, atvinnuþróunar og fræðslu. Kynntu þér nýjustu tíðindin!
Skoða fréttasafn