Menntastoðir
Vottuð námskrá FA. Menntastoðir eru ætlaðar þeim sem stefna á nám við undirbúningsdeildir háskóla eða vilja efla hæfni sína í almennum bóklegum greinum. Námið er fyrir einstaklinga, 18 ára og eldri, með stutta formlega skólagöngu og hafa hug á að:
- fara í undirbúningsdeildir háskólanna: Háskólabrú eða Háskólagátt
- ljúka bóklegum kjarnaáföngum fyrir iðnnám
- snúa aftur í nám á framhaldsskólastigi
Kenndir eru grunnáfangar í íslensku, ensku, stærðfræði, upplýsingatækni og námstækni.
Fyrirkomulag
Menntastoðir hefjast haustið 2021 og lýkur vorið 2022. Námið verður kennt með fjarnámsfyrirkomulagi svo það henti fólki óháð búsetu og gangi upp með vinnu. Vinnulotur og stoðtímar verða reglulega.
Verð: 162.000 kr. með fyrirvara um breytingar á verðskrá Fræðslusjóðs. Nemendur eru hvattir til að nýta sér styrki stéttarfélaga til menntunar.
Ávinningur
Námið er samþykkt sem tilskilinn undirbúningur fyrir undirbúningsdeildir háskólanna og einnig metið til stúdentsprófs fyrir þau sem vilja fara þá leið.
Námið er kennt samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og Menntamálaráðuneyti hefur samþykkt að meta megi námið til framhaldsskólaeininga og hefur það verið allt að 50-55 einingar.
Hæfniviðmið náms
Námsmaður skal:
- hafa öðlast þekkingu og skilning á lykilatriðum í kjarnagreinum framhaldsskóla
- hafa öðlast leikni í að beita þeirri námstækni sem hentar honum til náms
- geta hagnýtt sér þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að vinna verkefni sjálfstætt og skipulega og takast á við aðfararnám í háskólum.

Nánari upplýsingar veita
Hrönn Grímsdóttir

Nánari upplýsingar veita
Tinna Kristbjörg Halldórsdóttir