- 5. nóvember 2026
- 11:00 - 15:00
- Fróðleiksmolinn, Reyðarfirði
Farsældarráð á Austurlandi stendur fyrir Farsældardegi fimmtudaginn 5. nóvember í Fróðleiksmolanum á Reyðarfirði.
Á dagskrá verður fjallað um farsæld barna og ungmenna, niðurstöður rannsókna og reynsluna af innleiðingu farsældarlaganna. Markmið dagsins er að miðla þekkingu, ræða reynslu af starfinu og efla samtal um þjónustu við börn og fjölskyldur á Austurlandi.
Meðal dagskráratriða eru:
- Niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar. Ragný Þóra Guðjohnsen frá Háskóla Íslands kynnir niðurstöður rannsóknarinnar.
- Farsældarlögin. Páll Ólafsson, framkvæmdastjóri farsældar- og barnaverndarsviðs Barna- og fjölskyldustofu, fjallar um löggjöfina.
- Reynsla af farsældarstarfi á Austurlandi. Fjallað verður um störf og reynslu tengiliða og málstjóra sem vinna með börnum og fjölskyldum.
Boðið verður upp á súpu í hádeginu.
Nánari dagskrá verður kynnt síðar.
