Samstarf um hringrásarhagkerfi á Austurlandi
Eygló er samstarfsverkefni um eflingu hringrásarhagkerfis, orkuskipta og nýsköpunar á Austurlandi. Tilgangurinn er að leiða saman aðila til að afla alþjóðlegs fjármagns til tilrauna, rannsókna og þróunar á orku- og loftslagsvænum lausnum. Með auknu samstarfi fyrirtækja og opinberra aðila er ýtt undir verkefni sem byggja á verðmætasköpun úr vannýttu hráefni, bæði úr því sem er til staðar og því sem verður til vegna nýrra verkefna eða framleiðslu.
NánarFræðslumyndbönd til almennings
Vorið 2022 sótti Austurbrú um styrk í Loftslagssjóð, í samstarfi við sveitarfélögin á Austurlandi, til að framleiða þrjú kynningarmyndbönd með það að markmiði að hvetja samfélagið og einstaklinga á Austurlandi til að vinna að því saman að auka vitund um loftslagsbreytingar, líta í eigin barm og taka upp loftslagsvænan lífsstíl. Styrkur fékkst til að vinna myndböndin og var gengið til samninga við listafólkið Rán Flygenring, Elínu Elísabetu Einarsdóttur og Sebastian Ziegler um gerð kynningarmyndbandanna. Þau voru tekin upp sumarið 2022 og sett á vef Austurbrúar í byrjun árs 2023.
Nánar