Samkomulag um Gletting, nýjan hvatningarstyrk atvinnulífsins fyrir nemendur í Háskólagrunni HR á Austurlandi, var undirritað í gær af rektorum Háskólans í Reykjavík, Háskólans á Akureyri, ásamt framkvæmdarstjóra Austurbrúar og fulltrúum atvinnulífs á Austurlandi. Nýverið var greint frá því að HR muni í samstarfi við HA bjóða upp á undirbúningsnám fyrir háskólanám á svæðinu með sérstakri áherslu á tæknigreinar.
Markmið með nýjum hvatningarstyrk er að hvetja nemendur til góðrar ástundunar og auka vitund og umræðu um mikilvægi þekkingarstarfsemi á Austurlandi. Þeir nemendur sem ljúka fullu námi á einu ári með hæstu einkunn hljóta styrkinn. Hver styrkur mun nema 500.000 krónum og er ráðgert að einn til tveir nemendur geti hlotið styrkinn í lok námsárs. Alcoa-Fjarðaál, Síldarvinnslan, Loðnuvinnslan, Eskja og Laxar fjármagna styrkinn sameiginlega til tveggja ára en fulltrúar þeirra hafa tekið virkan þátt í fjármögnun og stefnumótum háskólaverkefnisins á Austurlandi.
Rektorar beggja skóla lýstu við undirskriftina yfir ánægju með víðtæka aðkomu atvinnulífsins að verkefninu og sögðu hana til marks um víðtækan og mikilvægan samfélagslegan stuðning við uppbyggingu háskólanáms á svæðinu.
Háskólagrunnur HR á Austurlandi er fyrir þau sem vilja hefja háskólanám en vantar tilskilinn undirbúning. Hægt er að ljúka lokaprófi úr Háskólagrunni eða viðbótarnámi við stúdentspróf og nýta sem leið inn í nám á háskólastigi. Umsóknarfrestur um námið rennur út 15. júní en kennsla hefst í ágúst. Námið verður sveigjanlegt, blanda af staðbundnu og stafrænu námi, með aðstöðu í húsnæði Austurbrúar í Fróðleiksmolanum á Reyðarfirði þar sem verkefnastjóri námsins verður einnig og aðstoðar nemendur ásamt því að taka að einhverju leyti þátt í kennslu og verkefnum.
Mynd: Frá vinstri, Jóna Árný Þórðardóttir framkvæmdarstjóri Austurbrúar, Dagmar Ýr Stefánsdóttir yfirmaður samskipta og samfélagsmála hjá Alcoa Fjarðaáli, Sigurður Ólafsson verkefnastjóri hjá Síldarvinnslunni, Ari Kristinn Jónsson rektor Háskólans í Reykjavík og Eyjólfur Guðmundsson rektor Háskólans á Akureyri.
Verkefnið hefur verið lengi í undirbúningi en samstarfssamningur um það var undirritaður í september síðastliðnum og á grunni hans hefur stýrihópur unnið að því með fulltrúum frá Háskólanum í Reykjavík, Háskólanum á Akureyri, sveitarfélögunum Fjarðabyggð, Múlaþingi, Austurbrúar/SSA og fulltrúum úr sjávarútvegi og iðnaði á Austurlandi. Samkvæmt samningnum verður s.s. boðið upp á nám í Háskólagrunni HR í háskólaútibúinu haustið 2021 en Háskólagrunnurinn er fyrsti áfanginn í uppbyggingu háskólaútibús á Austurlandi.
Sjá fréttFrá stofnun hefur Austurbrú unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar, markaðssetningar, atvinnuþróunar og fræðslu. Kynntu þér nýjustu tíðindin!
Skoða fréttasafn