Nærvera er sterkt hugtak í umönnun, en hvað felst í henni og hvernig birtist hún í starfi? Hvaða áhrif hefur hún og hvernig beitum við henni?

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist dýpri innsýn í hugtakið nærveru og tengsl þess við störf í heilbrigðisþjónustu. Þeir auka skilning sinn á því hvernig nærvera birtist í eigin starfi, hvaða þekkingu og reynslu þarf til að veita hana og hvernig menning innan heilbrigðisþjónustunnar getur haft áhrif á nærveru sem inngrip í umönnun, bæði á jákvæðan og neikvæðan hátt.

Námskeiðið er byggt upp af fyrirlestri, gagnvirkum samræðum og ígrundun, þar sem þátttakendur vekja eigin reynslu og starfsumhverfi til lífs í tengslum við það að veita nærveru í eigin starfi. Þeir tengja kenningar við eigin störf og nýta dæmi úr starfi til að öðlast dýpri skilning og vitund um mikilvægi nærveru sem meðferðarforms í umönnun.

Lengd námskeiðs: 3 klukkustundir

Dagsetning og tími: 24. nóvember kl. 13:00-16:00

Kennari: Erna Haraldsdóttir, Prófessor, BSc, MSc, PhD í hjúkrunarfræði

Staðsetning: Námskeiðið er haldið á Zoom

Fyrir hverja: Sjúkraliða, starfsfólk í aðhlynningu og hjúkrunarfræðinga. Athugið að hámarksfjöldi þátttakenda er 30.

Skráningarfrestur: 18. nóvember 2026

Nánari upplýsingar veitir: Þorbjörg Ólöf Jónsdóttir

Námskeið

Hjá Austurbrú er boðið er upp á fjölda námskeiða og lengri námsleiða. Kynntu þér úrvalið!

Skoða námskeið
Í leyfi

Nafn á starfsmanni

Starfstitill
Vinnustaður:
Nafn á vinnustað
Sími:
Símanúmer
Netfang:
Netfang
Helstu verkefni:
Menntun: