Til sjávar og sveita
Viðskiptahraðallinn Til sjávar og sveita býður upp á metnaðarfullan vettvang til vöruþróunar fyrir verkefni sem snúa að hátækni í matvælaiðnaði, nýjum lausnum í landbúnaði og haftengdum iðnaði og betri nýtingu hráefna þar sem sjálfbærni og nýsköpun eru höfð að leiðarljósi. Hraðallinn er einnig tilvalinn vettvangur fyrir þróun tæknilausna ætlaðar verslun og þjónustu, t.d. greiðslumiðlun, birgðastýringu, flutning o.þ.h. sem snýr að því að koma vörum í hendur viðskiptavina.
Nánar
ANA hraðallinn
Atvinnu- og nýsköpunarhraðallinn ANA snýst um að virkja fólk til athafna. Allir geta tekið þátt, bæði þeir sem eru með viðskiptahugmynd og þeir sem vilja vinna með teymi af fólki sem er með viðskiptahugmynd. Markmiðið með hraðlinum er að fólk fái fræðslu og aðstoð við að kortleggja hugmyndir sínar og tækifæri til þess að fá ráð og aðstoð frá reynslumiklum frumkvöðlum og fólki með mikla þekkingu úr umhverfi atvinnulífsins.
Startup Tourism
Startup Tourism er tíu vikna viðskiptahraðall sem er sniðinn að þörfum nýrra fyrirtækja í ferðaþjónustu. Markmið verkefnisins er að hvetja til nýsköpunar á sviði ferðaþjónustu, styrkja stoðir nýrra fyrirtækja, fjölga afþreyingarmöguleikum og stuðla að dreifingu ferðamanna víðsvegar um landið, allan ársins hring.
NánarSnjallræði
Snjallræði er ætlað að stuðla að fjölbreyttari nýsköpun hér á landi og skapa vettvang fyrir samfélagslegt frumkvöðlastarf. Hefðbundið hlutverk viðskiptahraðla (e. business accelerator) er að hraða ferlinu sem fyrirtæki fara í gegnum frá því að hugmynd fæðist og þar til viðskipti taka að blómstra. Samfélagshraðall byggir á svipuðu módeli en grundvallast á sterkri áherslu á samfélagslegan ávinning verkefnanna.
Nánar
Firestarter
Firestarter – Reykjavik Music Accelerator, miðar að því að rækta tónlistarfrumkvöðla, styrkja umgjörð viðskipta og efla tengsl tónlistar við umhverfi nýsköpunar og tækni.
Nánar