Mikilvægt að landinu öllu sé þjónað
Einn viðmælandi frá opinberri stofnun sagði:
„Ég veit ekki hvar við værum ef Háskólinn á Akureyri hefði ekki tekið upp fjarnámskennslu. Megnið af okkar hjúkrunarfræðingum hafa útskrifast þaðan. Ég útskrifaðist sjálfur þarna fyrir nokkrum árum sem fullorðinn maður. Þetta er frábær stofnun, eini alvöru fjarnámsháskólinn á Íslandi, langt á undan öllum öðrum. Háskóli Íslands er góður líka, er t.d. að útskrifa lífeindafræðinga og geilsafræðinga, sem hvergi útskrifast annars staðar. Háskólarnir standa sig alveg vel en Háskólinn á Akureyri stendur upp úr hvað snertir landsbyggðina. Það er algerlega mín skoðun. Það er svo margt landsbyggðarfólk sem menntaði sig þar og fór svo aftur í sína heimabyggð.“
Þessi sami viðmælandi sagði mikilvægt að aðrir skólar ykju framboð á fjarnámi, að þetta væru allt „flottir“ skólar og tiltók sérstaklega endurmenntunarsvið Háskóla Íslands. Þeim hafi hins vegar gengið misjafnlega að koma til móts við þarfir nemenda á landsbyggðinni.
Viðmælandi frá stóru iðnfyrirtæki hafði þetta að segja um námsframboð háskólanna:
„Þegar kemur að menntun og símenntun og endurmenntun fyrir sérfræðinga – háskólamenntað fólk – eru allir að fara suður til að leita sér að menntunnar, hvort sem það eru styttri námsleiðir, diplómanám eða hvað sem er. Það fer allt út fyrir Austurland. Einhverjir sem fara í leiðtogaþjálfun til Akureyrar, verkefnastjórnun. Mitt fólk bara í EHÍ, HÍ eða HR. Það er mjög kostnaðarsamt, flug og allt það, og við styrkjum fólk til náms svo framarlega sem það nýtist í starfi. Nám sem við styrkjum er alltaf kostnaðarsamt því við erum að sækja þetta allt meira og minna út fyrir svæðið. Þetta er ósköp einfalt- það vantar algerlega námsframboð – lengra eða styttra nám, námskeið.“
„Mikill vill meira“
Undir þetta viðhorfið sem viðmælandinn hér að ofan lýsti tóku flestir þótt ekki kvæðu allir jafn fast að orði. Viðmælandi eins sveitarfélags orðaði þetta svona aðspurður hvort námsframboð í nærumhverfinu væri fullnægjandi:
„Mikill vill meira og ég myndi vera hálffúl útí sjálfa mig ef ég segði að námsframboðið fullnægði okkar þörfum. Það hafa samt verið tekin risavaxin skref í þá átt að auðvelda manni aðgengi að t.d. háskólamenntun innan skólanna, ekki síst í leikskólakennaranám. Það er bara vegna þess að háskólarnir, sérstaklega HA, hefur farið að sinna nútímalegu hlutverki og býður upp á tækifæri til að sinna þessu án þess að þurfa alltaf að vera staddur á staðnum. Þetta skiptir gríðarlega miklu máli.“
Þegar sami viðmælandi var beðinn að setja sig í aðrar stellingar og svara sem „venjulegur“ íbúi á Austurlandi hafði hann þetta að segja:
„Ég held að menn geti gert meira á svæðinu. Ég held að við séum enn hefðbundin á þessu sviði, eins og svo mörgum öðrum. Við erum að „fara í nám“ sem þýðir að við tökum okkur upp og byrjum upp á nýtt, flytjum á milli landshluta eða til útlanda. Við getum gert meira hér heima. Við getum tekið háskólanám alls staðar úr heiminum, meira eða minna með því að nýta þá tækni sem í boði er. Ég held að það sé ekkert óhollt að sækja sér menntun og fara af staðnum. Þá færðu meira en bara það að bæta við þig gráðu eða auka þannig þekkingu þína – nýtt umhverfi, ný samskipti, allt þetta auðgar líka. Þú getur gert mikið með tækninni en auðvitað er ekki slæmt að fara að heiman. Það versta sem er, og það segi ég sem foreldri tveggja ungra kvenna sem eru aldar upp að stórum hluta til úti á landi, að þær fóru í nám – suður og til útlanda – en hvorug þeirra skilaði sér heim. Báðar eru með menntun sem væri fínt að hafa hérna en þegar þú ert búin að prófa að lifa og búa í stóru samfélagi, í stærri veruleika, þá verða heimahagarnir svolítið „þröngir“ og manni finnst valmöguleikarnir, félagslega en sérstaklega faglega, þrengja að sér.“
Þegar spurt var frekar um framboð náms, hvers viðmælendur söknuðu, fóru svörin að mestu eftir atvinnugrein viðkomandi. Viðmælandi hjá sveitarfélagi sem hafði með málefni fatlaðra að gera sagði skort á iðjuþjálfum og þroskaþjálfum en fulltrúar frá stórum iðn- og sjávarútvegsfyrirtækjum kölluðu eftir verk- og tæknimenntuðu fólki.
Einn viðmælandi sagði að það þyrfti nám sem tengdi saman rannsóknarmenntun og frumkvöðlafræðslu:
„Okkur vantar fólk sem er svona rannsóknarmiðað, fólk sem skoðar mismunandi hráefni. Það þarf líka do-era á móti. Ef ég hugsa t.d. um skógrækt eru bændur að planta skóg, sem er mjög mikilvægt, en ennþá er ofsalega lítið unnið með hráefnið sjálft nema þá að kötta það niður og smíða. Það þarf líka fólk til að leysa þetta upp í virk efni og gera úr því þannig vöru. Það þarf að taka svona hráefnisflokka alveg frá a til ö og skoða möguleikana í þeim.“
Stutt og hagnýtt nám
Eitt af því sem kom upp í nokkrum viðtölum var þörfin fyrir stutt og hagnýtt nám sem gagnast atvinnulífinu. Þetta kom úr ýmsum áttum, þ.e. að námið sem um ræddi var ólíkt eftir því hvar viðmælandinn starfaði. Þannig nefndu viðmælendur í heilbrigðis- og félagsmálageiranum að það væri mikilvægt að fjölga sjúkra- og félagsliðum. Viðmælendur frá verktakageiranum og hópbifreiða- og flutningageiranum voru nokkurn veginn samhljóða þegar þeir sögðu mikilvægt að bjóða upp vinnuvélaréttindanám og meirapróf.
Einn þeirra sagði þó að hann óttaðist að endurnýjun atvinnubílstjóra væri ekki nógu hröð, réttindanámið sé dýrt og erfitt að fá ungt fólk í slíkt nám. Viðmælandi úr verktakageiranum orðaði þetta þannig að ef „rétt“ vinnuafl væri til staðar, þ.e. „hæfir Íslendingar“ með vinnuvélaréttindi og meirapróf, væri hægt að fjölga starfsfólki um 5-10 manns – nóg sé til af tækjabúnaði: „Við gætum kannski tekið stærri verk og bara ráðið útlendinga en það kostar og þá þarf að redda húsnæði.“
Viðmælandi frá ferðaþjónustufyrirtæki segir þetta svolítið snúna stöðu. Það vanti fagmenntað fólk í eldhús og í framreiðslu en þegar hann var spurður hvort hann myndi fjölga fólki ef framboð af hæfu fólki væri fyrir hendi svaraði hann því neitandi, að launakostnaður byði ekki upp á það og það þyrfti að segja öðru fólki upp fyrst.