Á fundinum vakti Dagmar athygli á þeirri grósku sem er í matvælaframleiðslu á Austurlandi, bæði hjá stórfyrirtækjum og smáframleiðendum, en sagði jafnframt mikilvægt að styðja við smærri framleiðendur í gegnum sjóði og regluverk þar sem þeir eru mikilvægur þáttur í að auka matvælaöryggi, framþróun og byggðafestu en glíma við fjarlægð frá mörkuðum. Þá lagði Dagmar á það áherslu að auka aðgengi að og vitund almennings um matvælaframleiðslu í þeirra eigin nærumhverfi og bauð ráðherra að opna næsta Matarmót Austurlands sem haldið verður í nóvember 2025.

Dagmar fagnaði áformum um að auka fjármagn til Framkvæmdasjóð ferðamannastaða en lagði áherslu á að stutt yrði enn betur við starfsemi Áfangastaðastofa landshlutanna, en Austurbrú er ein þeirra. Áfangastaðastofum séu falin fjölmörg og aukin verkefni í nýrri ferðamálastefnu og þeim verði að fylgja aukið fjármagn. Fjölmörg tækifæri væru til uppbyggingar áfangastaða og mikilvægt að ráðrúm gefist til að byggja upp nýja staði jafnframt því sem hlúð sé að þeim áfangastöðum sem fyrir eru. Þá var uppbygging og markaðssetning Egilsstaðaflugvallar rædd og þakkaði Dagmar þann stuðning sem ráðuneytið hefur veitt því verkefni en samningur til tveggja ára um framlög til markaðssetningar var undirritaður fyrir skömmu. Mikilvægt væri hinsvegar að styðja enn betur við uppbyggingu vallarins og jöfnun aðstöðu t.d. er varðar eldsneytisgjald.

Dagmar tók upp fleiri mál sem eru Austfirðingum mikilvæg, svo sem nauðsyn þess að styðja við kynslóðaskipti í landbúnaði, löngu tímabær endurskoðun á lagaumhverfi og framkvæmd fjallskila, mikilvægi þess að skýra reglur um umgjörð sjókvíaeldis og að tekjur fiskeldissjóðs renni beint til sveitarfélaga þar sem eldi er stundað. Einnig var komið inn á umgjörð um bætur til bænda vegna rekstrartjóns í kjölfar náttúruhamfara.

Að síðustu brýndi Dagmar ráðherra til að stuðla að því að störfum á vegum hins opinbera fjölgaði á Austurlandi en þar er engin opinber stofnun með höfuðstöðvar.

 

Fleiri fréttir

Frá stofnun hefur Austurbrú unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar, markaðssetningar, atvinnuþróunar og fræðslu. Kynntu þér nýjustu tíðindin!

Skoða fréttasafn