Austurbrú
  • Þekking
    • Nám
    • Háskólanám á Austurlandi
    • Lísa – lærum íslensku
    • Rannsóknir
    • Námsráðgjöf og raunfærnimat
    • Fyrirtækjafræðsla
    • Fullorðinsfræðsla fatlaðra
  • Þróun
    • Austanátt
    • Starfamessa Austurlands 2024
    • Atvinnu- og samfélagsþróun
    • Hringrásarhagkerfi á Austurlandi
    • Uppbygging á Seyðisfirði (IS/EN)
    • Menning
    • Áfangastaðurinn Austurland
    • Uppbyggingarsjóður Austurlands
  • Þjónusta
    • Atvinnuþróun og ráðgjöf
    • Fjármögnun og styrkir
    • Háskólanemar
    • Námsráðgjöf og raunfærnimat
    • Samstarf
  • Austurbrú
    • Um Austurbrú
    • Ábendingar
    • Ársrit 2024
    • Fyrir fjölmiðla
    • Gagnasafn
    • Starfsfólk
    • Stefnur og reglur
    • Stjórn og skipulag
    • Störf í boði
    • English: About Austurbrú
  • SSA
    • Um SSA
    • Ársrit 2024
    • Efnahagsumsvif Austurlands
    • Fundargerðir og gögn
    • Fyrir fjölmiðla
    • Menningarverðlaun SSA
    • Sóknaráætlun Austurlands
    • Starfsfólk og stjórn
    • Svæðisskipulag
    • Sveitarfélög á Austurlandi

Áhersluverkefni Austurlands 2020 - 2024

Efling atvinnulífs á Austurlandi

Markmið verkefnisins er að byggja upp heimamarkað fyrir fyrirtæki í þjónustu og afþreyingu og stuðla að fjölgun starfa. Verkefnið snýst um þrjá meginþætti

  • Þróun og hönnun „vildarprógrams“ fyrir íbúa Austurlands sem hvetur til kaupa á austfirskri vöru og þjónustu.
  • Kynning á aðstöðu fyrir störf án staðsetningar.
  • Skilvirk kynning menningarviðburða í landshlutanum.

Þróun þekkingarsamfélags

Markmiðið er að efla tengsl og virkja mannauð fólks af erlendum uppruna til frekari samfélagsþátttöku sem og efla þekkingu sem styður við stefnumörkun í byggða- og atvinnuþróunarmálum. Verkefnið snýst um þrjú meginverkefni:

  • Raddir innflytjenda á Austurlandi.
  • Samstarf landshlutasamtakanna í rannsóknum í byggðamálum, áframhaldandi þróun fyrirtækjakannana og greinarbetri upplýsingaöflunar um stöðu atvinnulífsins.
  • Ráðstefna um áhrif skipulags og hönnunar á upplifun íbúa og gesta.
Sumarið 2020 tóku Austurbrú og Austurglugginn höndum saman og gáfu út sérstaka útgáfu af blaðinu á ensku sem tileinkuð var fólki af erlendum uppruna í fjórðungnum.

Þróunarverkefni á sviði menningar á Austurlandi

Markmiðið er að auka samvinnu við þórun menningarþátta sem og framkvæmd menningarviðburða sem ná yfir allan landshlutann og efla þannig samkennd og staðarstolt íbúa. Verkefnið snýst um þrjú meginverkefni:

  • Barnamenningarhátið Austurlands – BRAS
  • Dagar myrkurs – sameiginleg byggðahátíð íbúa á Austurlandi
  • Matarauður Austurlands
  • Áhersluverkefni í menningu á Vopnafirði og Djúpavogi.
Djúpivogur

Efling Egilsstaðaflugvallar

Markmiðið er að efla starfsemi á Egilsstaðaflugvelli með opnun gáttar fyrir millilandaflug, styrkja flugsamgöngur við Austurland og gera flugvöllinn þannig úr garði að hann geti betur þjónað millilandaflugi og sem varaflugvöllur. Verkefnið snýst um áframhaldandi þróun starfsemi á vellinum, þróun innviða, eftirfylgni með úrbótum o.fl.

Svæðisskipulag Austurlands 2022 - 2044

Svæðisskipulag Austurlands 2022 – 2044 var samþykkt af öllum sveitarstjórnum á Austurlandi haustið 2022. Það markar sameiginlega framtíðarsýn Fjarðabyggðar, Fljótsdalshrepps, Múlaþings og Vopnafjarðarhrepps fyrir lands­hlutann. Tilgangurinn er að samstilla stefnu sveitar­félaganna á sviði umhverfis, efnahags, samfélags og menn­ingar og tryggja þar með sjálfbæra þróun, komandi kynslóðum í hag. Svæðisskipulagið er langtíma stefnu­mark­andi áætlun sem framfylgt verður með skipulags­áætlunum hvers sveitarfélags og öðrum áætlunum SSA.

Nánar
Austurbrú
Austurbrú ses.
Tjarnarbraut 39e,
700 Egilsstaðir, Ísland

kt. 640512-0160

[email protected]

  • ÍST 85
  • facebook
  • Senda ábendingu
  • Persónuverndarstefna
  • Starfsstöðvar
  • kt. 640512-0160
  • 470 3800
  • [email protected]