Fjórða matarmót Matarauðs Austurlands var haldið í Sláturhúsinu á Egilsstöðum 9. nóvember. Undirbúningur var búinn að standa yfir í marga mánuði og má segja að uppskeruhátíðin hafi tekist einstaklega vel.
Matarmótið hófst á morgunfundi þar sem markmiðið var að auka samtal og samvinnu, læra hvert af öðru, stækka tengslanet, skoða hvernig við getum betur nýtt hráefni og vörur úr heimabyggð. Fyrstur á mælendaskrá var Þráinn Freyr Vigfússon, eigandi Súmac og Óx. Hann fjallaði um sinn feril, hvað það er sem drífur hann áfram og hvernig hann leggur megin áherslu á lókal hráefni, að styðja við smáframleiðendur og leita eftir nýju bragði og nýjum réttum. Þráinn leggur megináherslu á að nota staðbundið hráefni og nýta það sem jörðin gefur. Þráinn er einn af okkar fremstu og athyglisverðustu matreiðslumönnum og hefur verið óþreytandi við að kynna okkur fyrir fjarlægum slóðum og nýjungum í mat.
Önnur á mælendaskrá var Heidi Holm frá Visit Færeyjar en hún stýrir nýju verkefni; Bændur og ferðaþjónusta sem Visit Færeyjar og Færeyski landbúnaðarsjóðurinn standa að. Heidi fjallaði um verðmætasköpun í landbúnaði í Færeyjum, þar sem áhersla er á tengsl matar og ferðaþjónustu og hvernig hægt er að (endur)tengja heimamenn og gesti við staðbundna framleiðslu. Þá sagði hún frá verkefni sem kallast „Heimablíðni“ sem gengur út á það að bændur bjóða fólki heim – til að borða með þeim.
Þá tók við keflinu Jákup Sörensen, nefndarmaður í vestnorræna verkefninu Nora en það er sjóður sem styrkir verkefni þar sem markmiðið að gera Norðuratlantssvæðið (Ísland, Grænland, Færeyjar og Vestur-Noreg) að öflugu norrænu svæði, sem einkennist af sterkri sjálfbærri efnahagsþróun. Þar kemur maturinn sterkur inn og Jakup ætlar að segja okkur frá tækifærum sem felast í þessari samvinnu og möguleikum á að sækja um styrki. Að lokum sögðu Jákup og færeyski kokkurinn Gutti Winther frá keppninni „Young arctic chef“, sem haldin er ár hvert. Að erindum loknum var boðið upp á samtal og nýttu gestir tímann vel til að ræða málin.
Matarmótið sjálft hófst klukkan 14:00, þar sem Gréta Bergrún Jóhannesdóttir, nýr formaður Matvælasjóðs setti mótið. Strax varð ljóst að mikill áhugi var á því að kynnast framleiðendum á Austurlandi því Sláturhúsið fylltis. Segja má að fyrsta klukkutímann hafi verið ansi þröngt um fólk – en þröngt mega sáttir sitja, segir einhvers staðar og flestir gestanna létu það ekki á sig fá; nutu þess að smakka góðan mat, hitta vini og kunningja og versla frábærar vörur. Þeir framleiðendur sem voru á svæðinu voru himinlifandi með móttökurnar og telja að matarmótið sé orðinn mjög mikilvægur vettvangur fyrir þá til að kynna vörur sínar og koma þeim á framfæri.
Á mótinu voru þjálfari íslenska kokkalandsliðsins Snædís Xyza Jónsdóttir, Bjarki Snær Þorsteinsson, meðlimur í íslenska kokkalandsliðnu og Ægir Friðriksson, kennari í Hótel- og matvælaskólanum mætt til að bjóða fólki að smakka mat, sem þau höfðu eldað úr lítið nýttum og/eða vannýttum lambaafurðum. Þar mátti smakka djúpsteikta punga, lambahjörtu á spjóti og ýmislegt fleira. Afurðirnar sem þau elduðu úr voru gefnar af Sláturhússinu á Refsstað og búunum á Síreksstöðum og Refsstað. Auk þess var þessi hluti matarmótsins í samstarfi við nýja Nýtingarmiðstöð á Vopnafirði.
Danski kokkurinn Michale Miv Pederson og aðstoðarkokkur hans, Sigrún Sól Agnarsdóttir, buðu upp á fjölbreytt laxasmakk, í samstarfi við Kaldvík og Búlandstind. Þar mátti m.a. smakka hráan lax með dönsku kartöflusalati. Þá vorum við einnig með góða gesti í heimsókn frá Færeyjum, en þau buðu upp á tvær tegundir af ostum, frækex, rabbarbarasultu, rabbarbaravín og sterkari vín (gin, vodka og ákavíti).
Talið er að um 900 manns hafi sótt viðburðinn, en það voru um 30 framleiðendur vara frá Austurlandi sem kynntu sig. Fjöldi sýnenda fer vaxandi með hverju árinu og ljóst að viðburðurinn hefur fest sig í sessi og er kominn til að vera.
Mótið hefur frá upphafi verið styrkt af Sóknaráætlun Austurlands, auk þess sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur styrkt verkefnið veglega sl. þrjú ár.
Austurbrú þakkar öllum sem mættu og hlakkar til að halda áfram að hlúa að austfirskum framleiðendumá sem fjölbreyttastan máta.
Hér að neðan má hlusta á tvo þætti frá Austurlandi hlaðvarpi þar fjallað er um Matarmótið. Í þeim fyrri er talað við Sigrúnu Sól Agnarsdóttur sem ættuð er frá Austurlandi en er búsett á Norður-Jótlandi. Sigrún er nú nemi hjá danska kokkinum Michael Pedersen og klárar hvoru tveggja menntaskólann og kokkanámið næsta vor. Í seinni þættinum eru skipuleggjendur Matarmótsins teknir tali, rætt við austfirska framleiðendur, landsliðskokka og gesti.
Enn neðar er að finna fjölbreyttar svipmyndir frá Matarmótinu.
Myndir: Esther Ösp Gunnarsdóttir
Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir
Frá stofnun hefur Austurbrú unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar, markaðssetningar, atvinnuþróunar og fræðslu. Kynntu þér nýjustu tíðindin!
Skoða fréttasafn