Háskólanám
Flestir íslenskir háskólar bjóða upp á fjarnám af einhverjum toga. Hjá okkur geta fjarnemar sótt fjölbreytta þjónustu, allt eftir því hvað hentar kennsluaðferðunum og hverjum og einum nemanda. Við rekum námsver þar sem er lesaðstaða, nettenging og fjarfundabúnaður. Við veitum leiðbeiningar varðandi nám, s.s. námstækni, skipulag verkefna og ráðgjöf vegna prófkvíða, bæði til verðandi nemenda og þeirra sem eru í námi. Hjá okkur geta nemendur auk þess tekið próf, óháð því hvaða nám þeir stunda og í hvaða háskóla.
Nánar um háskólanám á AusturlandiNámsverin okkar
Starfsfólk Austurbrúar veitir fjarnemum þjónustu í námsverum þar sem er lesaðstaða, hópavinnuaðstaða, nettengingar og hægt að fá ýmsa námsráðgjöf.
Námsver okkar eru hér:
- Vopnafjörður – Sími: 864-9974 // [email protected] – Kaupvangur, menningarmiðstöð Vopnfirðinga.
- Egilsstaðir – Sími: 470-3800 // [email protected] – Vonarland, Tjarnarbraut 39e.
- Neskaupstaður – Sími: 864-42310 // [email protected] – Múlinn, Bakkavegur 5. Opnunartími er kl. 9:00-16:00 og eftir samkomulagi við starfsmenn.
- Reyðarfjörður – Sími: 470-3820 // [email protected] – Fróðleiksmolinn, Búðareyri 1. Opnunartími er kl. 8:00-16:00 og skv. samkomulagi við starfsmenn.
- Djúpivogur – Sími: 470 3870 // [email protected] – Djúpið/Sambúð, Mörk 12. Opnunartími er kl. 8:00-16:00 og skv. samkomulagi við starfsmenn.
Taktu prófin hjá okkur
Prófaumsýsla er nokkuð stór þáttur í þjónustu okkar við háskólanemendur en fjöldi prófa er tekin á starfsstöðvum Austurbrúar á ári hverju. Auk háskólaprófa eru tekin ýmis konar réttindapróf, íslenskupróf vegna ríkisborgararéttar og fleira. Próf af einhverju tagi fara fram hjá okkur allan ársins hring og fer umsýsla þeirra eftir ströngum reglum um meðhöndlun prófa. Beiðnir vegna prófaþjónustu á að senda á netfangið: [email protected] eða hafa samband við umsjónaraðila hennar.
Ráðgjöf
Austurbrú býður upp á þjónustu bæði í formi einstaklingsráðgjafar og stuttra námskeiða sem fjalla m.a. um leit í rafrænum gagnasöfnum, notkun hugarkorta, OneNote, ritgerðarvinnu, heimildavinnu í Word og námstækni og vinnubrögð.
- Ráðgjöf um námstækni og aðstoð vegna prófkvíða
- Aðstoð vegna vandamála í samskiptum við skóla
- Aðstoð við heimildaleit
- Almennar leiðbeiningar um uppsetningu ritgerða
- Hjálp við að finna sérfræðiaðstoð
Öll þessi aðstoð stendur nemendum til boða endurgjaldslaust.