Fjölbreytt verkefnaflóra
Markmið þróunarverkefna Austurbrúar er skapa tækifæri til uppbyggingar á Austurlandi og vinna eftir stefnumótun landshlutans. Verkefnin eru ólík innbyrðis að umfangi og innihaldi og viðfangsefnin eru á sviði rannsókna, atvinnuþróunar, markaðssetningar, menningar, nýsköpunar og sí- og endurmenntunar. Verkefnin hér að neðan eru einungis nokkur af þeim fjölbreyttu og fjömörgu verkefnum sem við sinnum.
Smáforritið Lísa: Íslenskukennsla hvar og hvenær sem er
Síðustu mánuði hefur Austurbrú unnið að þróun smáforritsins Lísu sem auðveldar innflytjendum að læra íslensku hvar og hvenær sem er. Verkefnið styður við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um menntun fyrir alla og að skapa jöfn tækifæri fyrir innflytjendur til þátttöku í íslensku samfélagi.
NánarEfling dreifbýlis
Í byrjun árs 2023 hófst verkefnið Vatnaskil hjá Austurbrú. Verkefnið fékk styrk úr byggðaáætlun og er tilgangur þess að efla nýsköpun og stuðla að fjölbreyttara atvinnulífi í dreifbýli á Austurlandi. Sérstök áhersla er lögð á að skapa tækifæri fyrir ungt fólk.
NánarHringrásarhagkerfið
Vorið 2022 sótti Austurbrú um styrk í Loftslagssjóð, í samstarfi við sveitarfélögin á Austurlandi, til að framleiða þrjú kynningarmyndbönd með það að markmiði að hvetja samfélagið og einstaklinga á Austurlandi til að vinna að því saman að auka vitund um loftslagsbreytingar, líta í eigin barm og taka upp loftslagsvænan lífsstíl. Styrkur fékkst til að vinna myndböndin og var gengið til samninga við listafólkið Rán Flygenring, Elínu Elísabetu Einarsdóttur og Sebastian Ziegler um gerð kynningarmyndbandanna. Þau voru tekin upp sumarið 2022 og sett á vef Austurbrúar í byrjun árs 2023. Þeim hefur verið dreift í alla skóla á Austurlandi, til opinberra stofnana, sveitarfélaga, annarra landshlutasamtaka og sem víðast og vonir standa til að þau fái gott áhorf og verði okkur öllum hvatning til að gera betur í þessum málum.
NánarBrothættar byggðir
Markmiðið Brothættra byggða er að stöðva viðvarandi fólksfækkun í smærri byggðakjörnum og sveitum landsins. Verkefnið er unnið með því að fá fram skoðanir íbúanna sjálfra á framtíðarmöguleikum heimabyggðarinnar og leita lausna á þeirra forsendum í samvinnu við ríkisvaldið, landshlutasamtök, atvinnuþróunarfélag, sveitarfélagið, brottflutta íbúa og aðra. Verkefnið er samstarfsverkefni Austurbrúar, Byggðastofnunar og viðkomandi sveitarfélags. Eitt bæjarfélag á Austurlandi, Stöðvarfjörður, er nú þátttakandi í verkefninu en áður hefur Borgarfjörður eystri tekið þátt.
NánarUppbygging á Seyðisfirði
Atvinnulífið á Seyðisfirði stendur frammi fyrir fordæmalausum og fjölþættum vanda í kjölfar hamfaranna í desember 2020. Greining sveitarfélagsins Múlaþings og Austurbrúar á stöðunni hefur sýnt fram á mikilvægi þess að styðja þétt við heimamenn. Stjórnvöld og Múlaþing hafa sett af stað þriggja ára verkefni til að byggja upp atvinnulíf á Seyðisfirði. Austurbrú fer með verkefnisstjórn.
NánarMatarauður Austurlands
Verkefnið Matarauður Austurlands er unnið í nánu samstarfi við Matarauð Íslands og Hið íslenska eldhús, en þau verkefni eru á vegum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis. Markmið Matarauðs Austurlands er að marka sérstöðu austfirskra framleiðenda og veitingaaðila, styrkja við ferðaþjónustu á Austurlandi, vinna með staðbundin hráefni þar sem áhersla er lögð á hreinleika, ferskleika og einfaldleika. Einnig verður unnið með árstíðabundin hráefni, hollustu og virðingu fyrir hráefninu.
NánarHáskólaútibú á Austurlandi
Austurbrú hýsir undirbúningsverkefni um stofnun háskólaútibús á Austurlandi. Stýrihópur yfir verkefninu er skipaður fulltrúum sveitarfélaga, fyrirtækja og framhaldsskóla á Austurlandi og Háskólans á Akureyri. Haustið 2020 var undirritaður samningur milli mennta- og menningarmálaráðuneytis og Austurbrúar um kennslu á háskólastigi á Austurlandi. Fyrsta skrefið í þá veru var tekið haustið 2021 þegar kennsla í Háskólagrunni HR hófst á Reyðarfirði. Á næsta ári, 2022, er stefnt að því að hefja kennslu á Austurlandi í hagnýtri iðnaðartæknifræði til B.Sc. gráðu.
NánarÚthérað
Verkefnið Úthérað: Ein sveit – okkar sveit er byggðaverkefni sem hófst árið 2022. Markmið verkefnisins var að fjalla um og ræða tækifæri og búsetugæði á svæðinu en það mynda fjórar sveitir: Eiðaþinghá, Hjaltastaðaþinghá, Hróarstunga og Jökulsárhlíð.
NánarÁfangastaðurinn Austurland
Markmið verkefnisins er að styrkja aðdráttarafl og samkeppnishæfni Austurlands, gera áætlun til lengri tíma með áherslu á sjálfbæran og arðbæran vöxt ferðaþjónustu og skapandi greina. Áherslan er einnig á svæðisskipulag, sem og velferð sveitarfélaganna og íbúa þeirra. Undanfarið hefur verið unnið sérstaklega með eflingu matarmenningar, þróunar ferðaleiða, vinnu með áfangastaði innan Austurlands sem og almenna ásýnd áfangastaðarins.
NánarEfling Egilsstaðaflugvallar
Verkefnið snýst um að opna aðra gátt fyrir millilandaflug inn í landið á Egilsstaðaflugvelli. Markmiðin eru þau að vinna að áframhaldandi greiningar- og undirbúningsvinnu, mynda tengslanet við ferða- og flugrekstraraðila – innlenda sem og erlenda, markaðssetningu Egilsstaðaflugvallar og efla samstarf við áhugasama ferða- og flugrekstraraðila. Verkefnið hefur verið eitt af áhersluverkefnum sóknaráætlunar Austurlands.
NánarInnviðagreiningar
Austurbrú hefur á síðustu árum unnið innviðagreiningar fyrir tvö stærstu sveitarfélögin á Austurlandi. Markmiðið með þeirri vinnu er að gefa greinargóða mynd af því sem sveitarfélögin hafa upp á bjóða, í dag og til framíðar, með því að taka saman upplýsingar sem gagnast geta bæði núverandi og framtíðar íbúum, fyrirtækjum og stofnunum sem leita staðsetningar til framtíðaruppbyggingar og þróunar.
NánarÁrsrit Austurbrúar
Í ársriti Austurbrúar má finna upplýsingar um þau verkefni stofnunarinnar sem efst eru á baugi hverju sinni. Í því er jafnframt getið um þá þjónustu sem við sinnum en öll okkar starfsemi miðar að því að ýta undir þróun samfélagsins, atvinnulífsins, háskólanáms, símenntunar, rannsókna og menningarstarfs í landshlutanum.
Ársrit 2020