Af hverju?
Nám fer ekki eingöngu fram innan formlega skólakerfisins heldur við alls konar aðstæður og í alls konar samhengi. Raunfærni er því samanlögð færni sem einstaklingur hefur náð með ýmsum hætti, s.s. starfsreynslu, starfsnámi, frístundanámi, skólanámi, félagsstörfum, fjölskyldulífi og annarri reynslu. Raunfærnimat er úttekt og viðurkenning á raunfærni einstaklings án tillits til þess hvernig eða hvar færninnar hefur verið aflað.
Eykur sjálfstraust
Markmið raunfærnimats er að meta með skipulögðum hætti hið óformlega nám til eininga og staðfesta hæfni einstaklingsins. Að ljúka raunfærnimati gerir þér þannig kleift að hefja nám þar sem þú ert staddur/stödd í þekkingu og færni. Reynslan hefur sýnt að þetta ferli getur aukið sjálfstraust og styrkt stöðu fólks á vinnumarkaði.
Hvernig?
Raunfærnimatið fer fram í starfsstöðvum Austurbrúar sem dreifðar eru um allan landshlutann.
Ferlið er einfalt:
- Kynning og viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa
- Færnimappa og sjálfsmat
- Matsviðtal
- Eftirfylgni – viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa
Á ég erindi?
Ef svarið við eftirfarandi spurningum er já áttu erindi í raunfærnimat:
- Ertu orðin/n 23 ára?
- Hefur þú unnið við fagið í þrjú ár eða lengur?
- Ertu með stutta formlega skólagöngu?
- Viltu bæta við menntun þína?
- Viltu styrkja stöðu þína á vinnumarkaði?
Getur stytt nám
Metið er inn á námsbrautir í framhaldsskólum. Dæmi: Húsasmíði, vélvirkjun, fisktækni, matartækni, leikskólaliðabraut o.fl. Raunfærnimatið er þér að kostnaðarlausu ef þú hefur ekki lokið formlegri menntun t.a.m. stúdentsprófi eða iðnprófi.