Eins og komið hefur fram á vefnum okkar verður lausnamótið Hacking Austurland haldið í Neskaupstað dagana 30. september til 2. október. En hvað er lausnamót og fyrir hverja? Þær Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú og Svava Björk Ólafsdóttir, nýsköpunarsérfræðingur hjá Hacking Hekla útskýra málið.
„Hakkaþon eða lausnamót, er nýsköpunarkeppni þar sem fólk kemur saman og skapar lausnir yfir stuttan tíma – venjulega um 24-48 klukkustundir,“ segir Svava Björk, umbeðin að útskýra þetta í stuttu máli. „Orðið hakkaþon er samsett úr tveimur orðum þ.e. maraþoni og „hacking“ og það gefur auðvitað ágætis mynd af þessu. Uppruna sinn eiga hakkaþonin í tæknigeiranum en þar sem þessi aðferðafræði hefur verið yfirfærð á önnur svið fannst okkur rétt að finna nýtt nafn og niðurstaðan var orðið lausnamót.“
Hacking Austurland er þriðja lausnamótið sem haldið er í samstarfi við Hacking Hekla, samstarfsvettvang um röð lausnamóta fyrir landsbyggðirnar. Tilgangurinn er að efla atvinnusköpun í gegnum nýsköpun og frumkvöðlastarf.
„Við erum að vinna með hafið eða bláu auðlindina,“ segir Arnfríður Eide, verkefnastjóri hjá Austurbrú. „Við ætlum að biðja þátttakendur að takast á við áskoranir sem miða að því að auka verðmætasköpun í hafinu,“ bætir hún við en á lausnamótinu Hacking Austurland munu þátttakendur glíma við þrjár lykilspurningar. Þær eru:
„Þetta er öflugur landshluti þegar kemur að sjávarútvegi og okkur fannst viðeigandi að vinna með þessa atvinnugrein á Hacking Austurland,“ segir Svava.
Arnfríður bætir við: „Hér eru stór og nútímaleg fiskvinnslufyrirtæki en mögulega vegna þess að á Austurlandi hefur atvinnustig verið hátt síðustu ár og áratugi og góð laun í boði að þá hefur frumkvöðlastarfsemi verið lítil á þessu sviði. Því viljum við gjarnan breyta. Við vitum að stöndugu sjávarútvegsfyrirtækin okkar vilja efla nýsköpun þannig að tækifærin eru til staðar og það eru allar forsendur til að nýta þau. Svona lausnamót getur hjálpað okkur að koma augum á tækifærin og hvernig sé mögulega hægt að nýta þau.“
„Lausnamótið byrjar á fimmtudegi,“ útskýrir Arnfríður. „Þá munu þátttakendur velta þessum spurningum fyrir sér og svo raða sér niður í teymi með öðrum þátttakendum og takast á við verkefnið. Þetta er mikil vinna í stuttan tíma, virkilega skemmtileg og spennandi, og hentar í raun öllum sem þora að stíga aðeins út fyrir þægindarammann.“
„Markmiðið er ekki endilega að þátttakendur komi með einhverja snilldarhugmynd,“ segir Svava. „Við ætlumst ekki til þess að næsta Marel verði til upp úr Hacking Austurland heldur að fólk kynnist nýsköpunarferlinu þ.e. hvernig sköpunarkrafturinn er virkjaður. Það geta nefnilega allir fengið góðar hugmyndir en á lausnamóti kynnist fólk því hvernig hugmyndunum er framfylgt.
Þá er þetta auðvitað tækifæri til að kynnast fólki sem er mögulega í svipuðum hugleiðingum og þú. Þannig geturðu stækkað tengslanetið og fátt er mikilvægara efnilegum frumkvöðlum.
Er þetta sniðið að þátttakendum sem hafa bakgrunn í sjávarútvegi?
„Nei, alls ekki,“ segir Arnfríður. „Það er mikill styrkur fyrir lausnamót ef fólk með mismunandi þekkingu og reynslu tekur þátt.“
Sem fyrr segir er Hacking Austurland þriðja lausnamótið á landsbyggðinni sem haldið er í samstarfi við Hacking Hekla, samstarfsvettvang um röð lausnamóta fyrir landsbyggðirnar.
Vegna heimsfaraldursins hafa lausnamótin farið fram á netinu en á Hacking Austurland verður viðhaft „tvöfalt kerfi“ s.s. hægt verður að taka þátt á netinu þótt lausnamótið sjálft fari fram í Neskaupstað. Svava útskýrir: „Það er hægt að skrá sig á Hacking Austurland og taka þátt á netinu en auðvitað hvetjum við fólk til að mæta til Neskaupstaðar. Það er okkar reynsla að upplifun fólks er önnur ef það mætir á staðinn. En ef þú kemst ekki og hefur samt áhuga er hægt að taka þátt í gegnum netið. Þannig voru bæði Hacking Suðurland og Hacking Norðurland haldin og gekk það vonum framar.“
Þannig að allir geta tekið þátt hvar svo sem þeir búa?
„Já, svo sannarlega,“ svarar Svava. „Þú getur búið í Reykjavík og tekið þátt í Hacking Austurland, hvort sem þú gerir það á netinu eða í Neskaupstað.“
Lausnamót verið mikil áskorun fyrir þátttakendur og eitt af því sem þeir þurfa að takast á við er að tala fyrir verkefninu sínu og svara spurningum dómnefndar. Í dómnefnd Hacking Austurland sitja Þór Sigfússon frá Sjávarklasanum, Margrét Ormslev frá Brunnur Ventures, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir hjá Íslenska ferðaklasanum, Guðný Káradóttir hjá Loftslagsráði og Sveinn Margeirsson sveitarstjóri í Skútustaðahreppi.
„Þetta er ekkert til að óttast,“ segir Arnfríður. „Þetta er áskorun en fyrst og fremst er mikill lærdómur fólgin í því að svara spurningum fólks sem þekkir vel til. Þau munu vera til ráðgjafar á sjálfu lausnamótinu og það er ómetanlegt í nýsköpunarferli að fá endurgjöf á hugmyndir sínar jafn óðum og þær fæðast.“
Dómnefnd mun velja besta verkefnið og verður tilkynnt um úrslit á Tæknidegi fjölskyldunnar sem fer fram í húsakynnum Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað laugardaginn 2. október.
HACKING AUSTURLAND er hluti af dagskrá OKKUR AÐ GÓÐU sem fer fram á Austurlandi 30. september til 2. október.
OKKUR AÐ GÓÐU er fjölbreytt og spennandi dagskrá tileinkuð matarmenningu, framleiðslu og sjálfbærni á Austurlandi.
Nánari upplýsingarFrá stofnun hefur Austurbrú unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar, markaðssetningar, atvinnuþróunar og fræðslu. Kynntu þér nýjustu tíðindin!
Skoða fréttasafn