Árni Magnús Magnússon, stofnandi Fjord Bikes á Borgarfirði eystri, hefur hlotið hvatningarverðlaun ferðaþjónustunnar á Austurlandi, Frumkvöðulinn 2026. Viðurkenningin var afhent á haustfundi ferðaþjónustunnar á Seyðisfirði 22. október.
Frumkvöðullinn er veittur einstaklingum sem sýnt hafa áræðni, frumkvæði og hugmyndaauðgi við uppbyggingu ferðaþjónustu á Austurlandi og með störfum sínum skapað ný tækifæri í greininni.
Árni stofnaði Fjord Bikes árið 2019 og hefur síðan unnið markvisst að uppbyggingu fjallahjólreiða á Borgarfirði eystri. Með starfsemi sinni hefur hann skapað nýja möguleika fyrir ferðamenn til að upplifa náttúru og landslag svæðisins og stuðlað að aukinni fjölbreytni í afþreyingu á Austurlandi.
Uppbyggingin hefur ekki eingöngu snúist um hjólreiðar heldur einnig þróun hjóla- og göngustíga sem bæta aðgengi að náttúrunni og stuðla að ábyrgri nýtingu hennar. Árni hefur lagt áherslu á samstarf við nærsamfélagið og sjálfbæra uppbyggingu með það meðal annars að markmiði að draga úr álagi á viðkvæm náttúrusvæði.
Með Fjord Bikes hefur Árni sýnt hvernig frumkvæði, útsjónarsemi og ástríða fyrir heimabyggð geta skapað ný tækifæri í ferðaþjónustu. Starf hans hefur aukið fjölbreytni í afþreyingu á Borgarfirði eystri og styrkt stöðu svæðisins sem áfangastaðar fyrir útivistarfólk.
Verkefni Árna, Fjarðarhjól, var jafnframt eitt fjórtán verkefna sem valin voru til þátttöku í viðskiptahraðlinum Startup Landið 2026, sem styður við nýsköpun og þróun fyrirtækja á landsbyggðinni.
Austurbrú óskar Árna innilega til hamingju með viðurkenninguna og þakkar honum fyrir mikilvægt framlag til ferðaþjónustu á Austurlandi. Á myndinni efst má sjá Bryndísi Ford, framkvæmdastjóra Austurbrúar, afhenda Árna Magnúsi viðurkenninguna.
Nánari upplýsingar um Fjord Bikes má finna á fjordbikes.com.
Frá stofnun hefur Austurbrú unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar, markaðssetningar, atvinnuþróunar og fræðslu. Kynntu þér nýjustu tíðindin!
Skoða fréttasafn