Stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) samþykkti á fundi sínum 27. október ályktun þar sem fyrirhuguðum breytingum á Loftbrúnni er harðlega mótmælt. Stjórnin telur breytingarnar fela í sér aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni og gagnrýnir skort á samráði við sveitarfélög og landshlutasamtök.
Ályktunin er eftirfarandi:
Ályktun Sambands sveitarfélaga á Austurlandi vegna breytinga á Loftbrúnni
Samband sveitarfélaga á Austurlandi mótmælir boðaðri breytingu á fyrirkomulagi Loftbrúarinnar.
Með breytingunni á fyrirkomulaginu er jafnræði í niðurgreiðslu fellt á brott og þeir sem mest þurfa að borga fá hlutfallslega minnst. Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu. Skerðingin er aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni enda gegnir innanlandsflugið mikilvægu hlutverki almenningssamgangna Austurlands.
SSA krefst þess að stjórnvöld falli frá breytingum í fasta krónutölu og tryggi þess í stað nægilegt fjármagn til að efla stuðninginn enn frekar með hærra hlutfalli afsláttar á innanlandsflugi. Þingmenn kjördæmisins verða að standa með íbúum gegn skerðingu á meginsamgönguæð fjórðungsins.
SSA gagnrýnir jafnframt harðlega það samráðsleysi sem einkennt hefur undirbúning fyrirhugaðra breytinga á Loftbrúnni. Það er óásættanlegt að stjórnvöld boði breytingar á jafn mikilvægu byggðajöfnunarúrræði án þess að hafa fyrst raunverulegt samráð við sveitarfélög og landshlutasamtök þeirra sem breytingarnar snerta með beinum hætti. Þekking og reynsla heimamanna verður að hafa vægi þegar teknar eru ákvarðanir sem varða grundvallarforsendur búsetu og aðgengi að þjónustu.
Austurland er í sókn og hér eru mikil tækifæri til áframhaldandi uppbyggingar. Ábyrg byggðastefna felst í því að styðja við þá þróun og tryggja íbúum og atvinnulífi samkeppnishæf skilyrði.
Þegar fulltrúar landsbyggðarinnar lýsa aðgerðum stjórnvalda sem aðför að búsetuskilyrðum verður þeirri gagnrýni ekki vísað frá sem einberri upplifun.
Frá stofnun hefur Austurbrú unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar, markaðssetningar, atvinnuþróunar og fræðslu. Kynntu þér nýjustu tíðindin!
Skoða fréttasafn