Alls bárust 109 umsóknir í Uppbyggingarsjóð Austurlands vegna verkefnaársins 2027. Umsóknum fjölgar frá fyrra ári og endurspeglar fjöldinn mikinn áhuga á atvinnuþróun, nýsköpun og menningarstarfi á Austurlandi.
Af umsóknunum eru 46 um atvinnu- og nýsköpunarstyrki, 58 um menningarstyrki og fimm um stofn- og rekstrarstyrki.
Á landsvísu bárust um 837 umsóknir í uppbyggingarsjóði landshlutanna og er hlutur Austurlands því um 13% af heildarfjöldanum.
Til samanburðar bárust 97 umsóknir í Uppbyggingarsjóð Austurlands vegna verkefnaársins 2026. Umsóknum hefur því fjölgað um rúm 12% milli ára.
Umsóknirnar fara nú í faglegt mat áður en úthlutunarnefnd tekur ákvörðun um styrkveitingar.
Frá stofnun hefur Austurbrú unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar, markaðssetningar, atvinnuþróunar og fræðslu. Kynntu þér nýjustu tíðindin!
Skoða fréttasafn