Þrír vinnustaðaklasar á Austurlandi fá samtals rúmar níu milljónir króna í styrki frá innviðaráðuneytinu. Styrkirnir eru hluti af 27 milljóna króna úthlutun til uppbyggingar og reksturs vinnustaðaklasa á landsbyggðinni.
Kaupvangur á Vopnafirði fær samtals 4.624.000 krónur til uppbyggingar og fjölgunar vinnuplássa. Sköpunarmiðstöðin á Stöðvarfirði fær 3.462.313 krónur til uppbyggingar og reksturs samvinnurýmis og Skuldarhalli á Vopnafirði fær eina milljón króna í rekstrarstyrk.
Styrkirnir eru veittir á grundvelli byggðaáætlunar og er markmið þeirra að fjölga atvinnutækifærum og auka fjölbreytni starfa á landsbyggðinni. Sérstök áhersla er lögð á minni byggðarlög þar sem atvinnulíf er einhæft eða atvinnusvæði fámenn.
Alls hlutu 14 verkefni styrki að þessu sinni.
Frá stofnun hefur Austurbrú unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar, markaðssetningar, atvinnuþróunar og fræðslu. Kynntu þér nýjustu tíðindin!
Skoða fréttasafn