Matarmót Austurlands verður haldið í Sláturhúsinu á Egilsstöðum laugardaginn 14. nóvember kl. 15–17. Þar gefst gestum tækifæri til að kynnast fjölbreyttri framleiðslu á Austurlandi, hitta fólkið á bak við vörurnar og smakka á ýmsu góðgæti úr fjórðungnum. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin.
Matarmótið er nú haldið í sjötta sinn og hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem vettvangur fyrir austfirska framleiðendur og áhugafólk um staðbundna framleiðslu. Á síðasta ári sóttu yfir þúsund gestir viðburðinn.
Á Austurlandi starfar fjölbreyttur hópur framleiðenda og frumkvöðla sem nýta hráefni og auðlindir svæðisins til að skapa áhugaverðar vörur. Á Matarmótinu koma þeir saman, kynna framleiðslu sína og gefa gestum kost á að fræðast um vörurnar, spjalla við framleiðendurna og að sjálfsögðu smakka.
Þótt matvæli séu í forgrunni er Matarmótið einnig vettvangur fyrir aðra frumkvöðla og framleiðendur sem nýta austfirsk hráefni í sköpun sinni. Mótið er því ekki aðeins kynning á matarmenningu landshlutans heldur einnig tækifæri til að sjá þann kraft og sköpunarkraft sem einkennir staðbundna framleiðslu á Austurlandi.
Matarmót Austurlands fer fram laugardaginn 14. nóvember kl. 15–17 í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin.
Nánari upplýsingar á Facebook-viðburði Matarmóts Austurlands.
Frá stofnun hefur Austurbrú unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar, markaðssetningar, atvinnuþróunar og fræðslu. Kynntu þér nýjustu tíðindin!
Skoða fréttasafn