Eygló hefur ráðið Hrafnkötlu Eiríksdóttur í stöðu verkefnastjóra og mun hún hefja störf snemma á nýju ári. Staða verkefnastjóra var auglýst laus til umsóknar um miðjan september, þrettán umsóknir bárust áður en umsóknarfresturinn rann út.
Hrafnkatla er með meistaragráðu í dýravísindum frá Kaupmannahafnarháskóla, viðbótardiplóma í hnattrænni heilsu frá Háskóla Íslands, BA í þjóðfræði frá Háskóla Íslands og BSc í náttúru- og umhverfissfræði frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri. Hún er fædd og uppalin á Skjöldólfsstöðum í Jökuldal og þekkir því vel samfélagið á Austurlandi. Hrafnkatla hefur búið víða um land og í Danmörku. Síðastliðið ár hefur hún starfað hjá Six Rivers Iceland á Vopnafirði sem verkefnastjóri og í störfum sínum bar hún ábyrgð á áætlanagerð, skipulagsmálum og umsóknum er snertu skógræktaráform fyrirtækisins.
Hrafnkatla segist spennt að koma að betri nýtingu auðlinda og aukinnar nýsköpunar á Austurlandi og bjóðum við hana hjartanlega velkomna til starfa.
Eva Mjöll Júlíusdóttir hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Eyglóar og eru henni þökkuð vel unnin störf.
Frá stofnun hefur Austurbrú unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar, markaðssetningar, atvinnuþróunar og fræðslu. Kynntu þér nýjustu tíðindin!
Skoða fréttasafn