„Ég mæli með tölvunarfræði fyrir hvern sem er,“ segir Sigrún Júnía Magnúsdóttir frá Egilsstöðum. Hún segir námið krefjandi en hafi fólk áhuga á tækni sé hálfur sigur unnin. Við ræddum við þennan 36 ára gamla bónda og „tækninörd“ og fengum að kynnast náminu en tölvunarfræði verður í fyrsta sinn kennd á Austurlandi frá og með næsta hausti.
Sigrún hefur verið sjálfstætt starfandi margmiðlunarhönnuður um árabil. Áhugi hennar á tölvunarfræði kviknaði fyrir nokkrum árum þegar hún hannaði örmerkjalesara fyrir sauðfé en meðfram tölvuvinnunni er hún bóndi í Tjarnarlandi í Hjaltastaðaþinghá og rekur þar sauðfjár- og hrossaræktarbú ásamt eiginmanni sínum. „Mig langaði eiginlega bara til að kynnast því betur hvernig ég gæti nýtt tæknina til að létta mér lífið,“ segir Sigrún en hún skráði sig í námið árið 2020 við Háskólann á Akureyri.
Þegar við heyrðum í Sigrúnu hafði hún nýlokið við lokaverkefnið sitt sem hún vann í samvinnu við Austurnet. Spennandi verkefni sem fólst í að endurskrifa söluvefinn Hlunnindi.is þar sem landeigendur geta selt leyfi til rjúpnaveiða.
Hjá Austurneti hefur hún dvalið löngum stundum við lærdóminn og fengið mikla og góða hjálp hjá starfsfólkinu svo ekki sé minnst á félagsskapinn. „Þegar maður er í fjarnámi kynnist maður samnemendum sínum ekki eins vel og maður kannski vildi,“ segir Sigrún. „Þá kom sér vel að vinna með fólkinu hjá Austurneti.“
Sigrún var upphaflega ekki skráð í fjarnám og segir að heimsfaraldurinn hafi í raun „bjargað sér“. Þá hafi öll kennsla farið fram á netinu og lítið mál að stunda námið að austan. „Ég er bóndi og á erfitt um vik að fara nokkuð. Þá á ég líka mann og tvö börn, fjögurra og átta ára, en fjarnámið gerði mér kleift að sinna þessu vel,“ segir Sigrún. Vegna þessara skuldbindinga þurfti hún að vera skipulögð og nýtti sér óspart sveigjanleika námsins. „Ég tók þetta bara á mínum hraða,“ segir hún en Sigrún fékk 60 einingar úr fyrra námi metnar og kláraði á sex önnum. Sigrún segir að tölvunarfræði sé mjög skemmtileg en á sama tíma krefjandi. „Þetta er eins og að læra nýtt tungumál,“ útskýrir hún, „og það geta allir lært tölvunarfræði sé áhuginn til staðar. Já, þetta erfitt og stundum flókið en það á ekki að stöðva neinn sem hefur raunverulegan áhuga. Ég verð seint talin mikill námsmaður, er með bullandi lesblindu, en ég er þrjósk og áhugasöm. Þá eru manni allir vegir færir.“
Aðspurð um hvað einkenni góðan tölvunarfræðinemanda segir hún að áhugi á tækni sé kostur en ekki skilyrði. „Ég hef alltaf verið tækninörd, hef gaman af að taka hluti í sundur og setja þá saman aftur en ég var líka með fólki í námi sem vissi ekkert um tölvur. Það lét þekkingarleysið samt ekki stöðva sig. Þetta er fjölbreytt nám, þú getur lært forritun, viðmótshönnun, bakendahönnun og ýmislegt annað. Það er hægt að fara margar leiðir og það gerir námið spennandi.“
Hún fagnar því að tölvunarfræðin verði í boði fyrir austan og segir að það sé mjög þýðingarmikið að hafa verkefnatímana á Reyðarfirði. „Ég þurfti nokkrum sinnum að fara norður og fá aðstoð og það hefði auðvitað stundum komið sér vel að hafa aðstoðina nær.“
Sigrún segist ekki ætla í frekara nám að svo stöddu. Nú einbeiti hún sér að vinnunni hjá Austurneti og búskapnum en þessir tveir heimar fari afar vel saman að hennar mati „Það er alls staðar hægt að létta sér lífið með aukinni tækni,“ segir hún. „Og þá er það líka bara þannig að þegar maður hefur setið lengi við tölvu er fátt betra en að fara út og moka skít!“
Við hvetjum alla sem eru í námshugleiðingum á Austurlandi að skoða tölvunarfræðinámið. Fyrir utan gagnsemi og mikilvægi þess er einfaldlega ódýrara og fyrirhafnarminna að læra í heimabyggð!
Umsóknarfrestur er til 5. júní.
NánarFrá stofnun hefur Austurbrú unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar, markaðssetningar, atvinnuþróunar og fræðslu. Kynntu þér nýjustu tíðindin!
Skoða fréttasafn