Austurbrú hefur ráðið Lilju Sif Magnúsdóttur sem verkefnastjóra sjálfbærniverkefnisins. Hún hefur þegar hafið störf en hún er með starfsaðstöðu á Egilsstöðum. Lilja mun sjá um samantekt og uppgjör á verkefninu, sem hefur safnað mikilvægum mælingum um austfirskt samfélag í tæp tuttugu ár, og miðla niðurstöðum þess til samfélagsins.
„Ég mun sjá um samantekt og uppgjör á verkefninu og að miðla niðurstöðum þess. Það verður nóg af áhugaverðu að segja frá út frá þessum gögnum,“ segir Lilja um nýja hlutverkið sitt. „Það sem heillaði mig við starfið er hversu miklir möguleikar eru í miðlun niðurstaðna verkefnisins. Það verður spennandi að vinna með ólíku fólki úr nærsamfélaginu og sérfræðingum til að koma efninu til skila,“ segir hún.
Lilja er fædd og uppalin í Grímsey, lauk framhaldsskóla á Akureyri, dvaldi í New York og útskrifaðist með BS-gráðu í ferðamálafræði í Reykjavík. Hún hefur einnig grunndiplómu í heilbrigðisgagnafræði og er menntuð sem landvörður. Í dag býr hún í Fellabæ ásamt unnusta sínum. Lilja er mikill útivistarmaður, stundar crossfit, nýtur þess að hlaupa og ganga á fjöll og lýsir sér sem „ástríðufullum ferðalang!“
Við bjóðum Lilju Sif velkomna til starfa en með ráðningu hennar hyggst Austurbrú leggja aukna áherslu á aðgengi samfélagsins að niðurstöðum sjálfbærniverkefnisins.
Sjálfbærniverkefni Alcoa Fjarðaáls og Landsvirkjunar var komið á til að fylgjast með áhrifum framkvæmda við Kárahnjúkavirkjun og álverið í Reyðarfirði á samfélag, umhverfi og efnahag á Austurlandi. Vöktun hefur staðið yfir frá árinu 2007. Austurbrú hefur haldið utan um verkefnið frá árinu 2013.
Frá stofnun hefur Austurbrú unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar, markaðssetningar, atvinnuþróunar og fræðslu. Kynntu þér nýjustu tíðindin!
Skoða fréttasafn