Viðauki I – Spurningalisti
- Vantar þitt fyrirtæki / þína stofnun starfsfólk eða mun vanta starfsfólk á næstu árum?
Já, það vantar starfsfólk núna
Nei, það vantar ekki starfsfólk
Líklega mun vanta starfsfólk á næstu tveimur árum
Ólíklegt er að starfsfólk muni vanta á næstu tveimur árum
Á ekki við/Veit ekki
Annað sem þú vilt taka fram varðandi hvernig hefur gengið að ráða fólk með þá menntun/hæfni sem óskað er eftir:
- Hvernig hefur gengið síðustu 2 ár að fá fólk með þá menntun/hæfni sem fyrirtækið/stofnunin þarfnast?
Oftast mjög vel
Yfirleitt nokkuð vel
Misjafnt
Yfirleitt fremur illa
Oftast mjög illa
Annað sem þú vilt taka fram varðandi hvernig hefur gengið að ráða fólk með þá menntun/hæfni sem óskað er eftir:
- Hvaða menntun vantar eða mun vanta í þitt fyrirtæki / þína stofnun á næstu árum? Hversu marga telur þú að vanti með ákveðna menntun: Háskólamenntun Iðnmenntun Stúdentspróf Styttra starfsnám Ófaglærða Aðra menntun
Fjöldi starfsmanna: Engan starfsmann með þessa menntun 1 starfsmann 2-3 starfsmenn 4-10 starfsmenn 11 eða fleiri starfsmenn Á ekki við/Veit ekki
- Hversu algengt eða sjaldgæft er að umsækjendur um störf hafi meiri menntun en starfið sem auglýst er krefst?
Mjög algengt
Frekar algengt
Hvorki algengt né sjaldgæft
Frekar sjaldgæft
Mjög sjaldgæft
Á ekki við
- Vinnur fyrirtækið / stofnunin eftir formlegri fræðslu/símenntunarstefnu og áætlun?
Já, fyrirtækið er með virka stefnu og áætlun varðandi fræðslu og símenntun
Já, en stefnan er ekki með virka áætlun varðandi fræðslu og símenntun
Nei, fyrirtækið hefur ekki þörf fyrir slíka stefnu eða áætlun
Nei en fyrirtækið hefur áhuga á að koma sér upp fræðslustefnu og áætlun varðandi símenntun
- Hafa starfsmenn á þínum vinnustað sótt sí- og endurmenntun á vegum þíns fyrirtækis sl. 12 mánuði?
Já
Nei
Veit ekki
- Hefur fyrirtækið / stofnunin átt samstarf við menntastofnanir á Austurlandi sl. tvö ár?
Já
Nei
Veit ekki
- Hvert sækir þitt starfsfólk sí- og endurmenntun? (Merkið við allt sem við á)
Í framhaldsskólana á Austurlandi
Austurbrú
Erlendis
Innan fyrirtækis/stofnunar
Hefur ekki sótt símenntun
Annað sem þú vilt taka fram varðandi símenntun starfsmanna:
- Hefði þitt fyrirtæki/stofnun áhuga/þörf á að fá heimsókn frá náms- og starfsráðgjafa sem gæti farið yfir ýmislegt sem framhaldsfræðslan gæti stutt atvinnulífið með? Merktu við allt sem við á.
Já, innlegg um fræðsluáætlanir (sí- og endurmenntun starfsfólks) fyrirtækja og hvernig fyrirtæki/stofnanir get sótt sér styrki til að láta útbúa og framkvæma slíkar áætlanir.
Já, innlegg um raunfærnimat (hvernig meta má starfsreynslu sem hluta af formlegu námi)
Já, almenna fræðslu og upplýsingar um námsleiðir frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
Já, almenna fræðslu og upplýsingar um náms á framhalds- og háskólastigi
Nei, við þurfum ekki svoleiðis
- Hversu vel eða illa telur þú að námsframboð í þínu nærumhverfi komi til móts við þarfir fyrirtækisins / stofnunarinnar? Hver er þörfin? Hvað vantar? Hvað er vel gert?
- Á hvaða svæði á Austurlandi er aðalstarfsstöð fyrirtækisins / stofnunarinnar?
- Hvernig er eignarhaldi fyrirtækisins / stofnunarinnar best lýst?
Einkafyrirtæki
Í eigu sveitarfélags
Ríkisfyrirtæki eða stofnun
Sjálfseignarstofnun
Samvinnufélag
Annars konar eignarhald: Hvers konar?
- Í hvaða atvinnugrein starfar fyrirtækið / stofnunin? (Ef um fleiri en eina grein er að ræða veljið þá aðal atvinnugrein).
Fasteignaviðskipti
Fiskveiðar/fiskvinnsla/fiskeldi
Fjármála- og vátryggingastarfsemi
Flutningar og geymsla
Fræðslustarfsemi
Gisting og veitingar
Heilbrigðis- og félagsþjónusta
Iðnaður
Landbúnaður
Leiga og sérhæfð þjónusta
Mannvirkjagerð
Menning, íþróttir og tómstundir
Opinber stjórnsýsla
Sérfræðileg starfsemi
Upplýsingar og fjarskipti
Veitur
Verslun
Ökutæki
- Hver er fjöldi ársverka hjá þínu fyrirtæki / stofnun?
<1 1 2-5 6-10 11-20 21-50 51-100 >101
Viðauki II – Viðtalsvísir
Viðtölin voru hálfopin og áherslurnar breyttust örlítið eftir því sem viðtölunum fjölgaði. En viðmælendur voru upplýstir um að spyrill myndi að minnsta kosti ræða eftirfarandi:
• Hvernig eru hlutföllin um það bil á milli faglærðra og annarra hjá fyrirtækinu?
• Hvernig hefur gengið undanfarin ár að fá fólk með þá menntun / hæfni sem fyrirtækið þarfnast?
• Hvernig sérð þú fyrir þér þróunina næstu 10 ár hvað varðar starfsmannamál?
• Hvernig starfsfólk vantar eða mun vanta í þitt fyrirtæki?
• Gætuð þið bætt við ykkur starfsfólki ef „rétta“ vinnuaflið væri til staðar nú?
• Hve mörgum starfsmönnum gæti fyrirtækið bætt við sig?
• Hversu líklegt er að þitt fyrirtæki muni bæta við sig starfsfólki á næstu tveimur árum?
• Hver er þín tilfinning fyrir vinnuaflsþörfinni meðal fyrirtækja á Austurlandi?
• Telur þú að þú fáir fólk hér á þínu starfssvæði með þá menntun sem þú þarfnast?
• Hvaða menntun er brýnast að efla á Austurlandi?
• Hvernig finnst þér skólarnir í þinni heimabyggð þjónusta þína atvinustarfsemi/atvinnulífið?
• Hvað er vel gert og hvað ekki?
• Hvernig gætu skólarnir betur komið til móts við þína atvinnustarfsemi?
• Tekur þitt fyrirtæki við iðnnemum?
• Telur þú þitt fyrirtæki vera í góðum tengslum/samskiptum við skólana á svæðinu?
• Er mikilvægt að efla tengsl skóla og atvinnulífs? Af hverju?
• Hvert sækir þitt starfsfólk sí- og endurmenntun?
• Hvernig finnst þér framboðið af sí- og endurmenntun vera? Hvernig væri heppilegast að efla það?
• Hverskonar þjálfun hlýtur starfsfólk innan fyrirtækisins?
• Haldið þið sjálf námskeið innan fyrirtækisins? Ef já, af hverju?
• Getur fólk búið á svæðinu og menntað sig / tekið námskeið?
• Myndir þú hvetja þitt starfsfólk til að fara í starfsþjálfun í tiltekinni starfs- eða iðngrein?
• Hvaða breytinga er þörf í menntunarmálum á svæðinu?