Þann 29. apríl sl. fór 56. aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) fram í Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði.
Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf, s.s. skýrsla stjórnar, kynning á ársreikningi fyrir 2021 og fjárhagsáætlunum fyrir árin 2022 og 2023. Auk þeirra var sagt frá framvindu við verkefnið Svæðisskipulag Austurlands sem nýlega hefur lokið auglýstum umsagnatíma. Alls barst 31 umsögn sem nefnd um skipulagið hafði tekið fyrir á fundi sínum deginum áður.
Frá stofnun hefur Austurbrú unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar, markaðssetningar, atvinnuþróunar og fræðslu. Kynntu þér nýjustu tíðindin!
Skoða fréttasafn