Fyrsta Orkuskot haustsins fór fram í Tónspili í Neskaupstað 1. september síðastliðinn. Þar fjallaði Kolbeinn Óttarsson Proppé, framkvæmdastjóri Grænafls, um rafvæðingu smábáta og þróunarverkefni fyrirtækisins sem miðar að því að breyta hefðbundnum dísilknúnum strandveiðibátum í rafmagnsbáta.
Á fundinum komu fram fjölmargar spurningar um rafvæðingu smábáta, meðal annars um kostnað, drægni, hleðsluinnviði og rekstrarhagkvæmni. Austurbrú hefur tekið saman helstu spurningarnar sem komu fram í umræðum á fundinum og svör við þeim. Kolbeinn hefur yfirfarið og staðfest svörin fyrir birtingu.
Samantektin er hluti af fundaröðinni Orkuskot, sem Austurbrú stendur fyrir á fimm stöðum á Austurlandi haustið 2026 í tengslum við Eyglóarverkefni stofnunarinnar.
Hver er kostnaðurinn við að breyta strandveiðibát úr dísel yfir í rafmagn?
Breytingar á bátnum Oddverja eru fyrsta verkefnið og verða dýrar. Um rannsóknar- og þróunarverkefni er að ræða og mikill kostnaður fólginn í því að vinna nýjar lausnir frá grunni, lenda í vandamálum og endurhanna.
Ekki er vitað hvert endanlegt söluverð til einstaklinga yrði þegar reynsla verður komin á breytingarnar. Við (Grænafl) erum að kanna hversu mikið dýrari lausnin má vera samanborið við hefðbundna vélaupptöku. Það verður óraunhæft að einstakir bátaeigendur geti staðið einir undir öllum kostnaði við breytingarnar og því mikilvægt að stjórnvöld komi til móts við þá með styrkjum.
Í dag er undanþága frá virðisaukaskatti, bæði á búnaði við að breyta bátum og á kaupum á rafmagnsbátum, en það þarf að vera mun heilsteyptari nálgun á þetta, samanborið við hvernig staðið var að málum í upphafi á orkuskiptum í bílaflotanum.
Verður hægt að breyta öllum gerðum af strandveiðibátum eða bara Gáskum?
Eins og staðan er í dag er ekki verið að bjóða upp á markaðsvöru sem hentar öllum, heldur verið að horfa á einn hóp báta til að byrja með. Síðan munum við víkka út hópinn með fenginni reynslu og geta boðið upp á lausn fyrir flestar tegundir. Þegar verið er að vinna með retrofit-breytingar eins og hér, þá þarf alltaf að laga allar breytingar að hverjum bát fyrir sig.
Lausnin mun sömuleiðis ekki henta öllum bátum eða öllum veiðisvæðum. Fjarlægð á mið hefur áhrif sem og bátsgerð, þar sem aðlaga þarf búnaðinn að hverri tegund, og mjög litlir bátar eru afar óhentugir út af þyngd búnaðarins. En þetta mun henta mörgum.
Hversu lengi getur báturinn siglt á rafmagni?
Nýjasta útfærslan gerir ráð fyrir sex rafhlöðum. Þær ættu að duga fyrir allt að átta klukkustunda siglingu við góðar aðstæður og skynsamlega keyrslu. Við meiri hraða og verri aðstæður styttist sá tími.
Þótt markmiðið okkar sé að bátarnir geti farið í hefðbundinn túr alfarið á rafmagni við venjulegar aðstæður er nauðsynlegt að öruggt varaafl sé til staðar þegar aðstæður krefjast þess. Á sjó er erfitt að vita nákvæmlega fyrir fram hversu mikil orka verði notuð og aðstæður geta breyst. Við verðum með díselmótor sem framleiðir rafmagn inn á kerfið í neyð.
Er átta klukkustunda drægni reiknuð með því að tæma rafhlöðuna alveg?
Nei. Gert er ráð fyrir að nota rafhlöðuna á bilinu 80% niður í 20%.
Rafmagnsbátar eru ekki keyrðir á fullu afli allan tímann og raforkuvæðingin kallar sömuleiðis á breytt aksturslag. Hægt er að miða við 5 klst. á fullri keyrslu, miðað við nýjustu útfærsluna á Oddverja.
Hversu langan tíma tekur að hlaða rafhlöðurnar? Er nægur tími til að hlaða á milli túra?
Við erum í samstarfi við HS Orku um þessi mál og niðurstaðan mun liggja fyrir þegar við setjum upp fyrstu hleðslustöðina á Siglufirði næsta vor. Ljóst er þó að hleðslutími fer eftir því hleðsluafli sem verður í boði í höfnum og stærð rafhlaðnanna.
Til að rafvæðing strandveiðibáta verði raunhæfur kostur þarf að tryggja að hægt sé að hlaða bátana nægilega hratt á milli veiðiferða. Það mun sums staðar kalla á uppbyggingu viðeigandi hleðsluinnviða í höfnum og samstarf við hafnaryfirvöld og orkufyrirtæki.
Borgar sig frekar að byggja bát frá grunni heldur en að breyta núverandi bát?
Í dag er það miklu ódýrari og hraðvirkari lausn að breyta bátum sem þegar eru í notkun frekar en að smíða allt upp á nýtt. Svo er það líka í anda hringrásarhagkerfisins að nýta það sem fyrir er. Við munum samt skoða hvort að þetta verkefni verði til þess í framtíðinni að við munum smíða báta frá grunni.
Hvað gerist með þyngd bátsins við breytinguna?
Bátarnir munu þyngjast. Oddverji mun þyngjast um 800 kg upp í eitt tonn, þó nákvæm þyngd fari eftir útfærslu og því hvaða búnaður er fjarlægður á móti. Annar munur er sá að olíubátar léttast líka eftir því sem olían brennur, en bátar knúnir á raforku eru alltaf jafnþungir. Þessi tækni er hins vegar í örri framþróun og rafhlöðurnar eru stöðugt að léttast og endast betur, svo allar tölur í þessum efnum breytast hratt.
Væri skynsamlegra að byrja á stærri bátum?
Strandveiðibátarnir eru hentugir í rannsóknar- og þróunarverkefni því þeir eru minni útgáfa af stærri bátum og dagróðrabátar henta best fyrir rafvæðingu, þar sem þarf að hlaða batteríin. Þegar búið er að finna hentuga lausn og leysa þau vandamál sem munu koma upp verður hægt að skala þessa lausn upp í stærri báta. Það er flóknara að byrja í stóru bátunum, en þetta eru fyrstu skrefin inn í stærri markað.
Í heiminum hefur lítil áhersla verið lögð á orkuskipti minni báta. Við eigum mikið af þeim hér á landi og því tilvalið að setja fókusinn á þetta starf hér.
Strandveiðibátar eru litlar rekstrareiningar sem eru aðeins reknar lítinn hluta ársins. Er þá nægur fjárhagslegur sparnaður til að réttlæta fjárfestinguna?
Markmiðið er að þróa lausn þar sem fjárfestingin geti greitt sig upp á um 3–5 árum. Það er þó háð endanlegu verði breytingarinnar, fjárfestingarstuðningi, raforkuverði, notkun bátsins og þeim ívilnunum sem kunna að verða í boði. Enn er of snemmt að fullyrða um raunverulegan endurgreiðslutíma.
Sumir strandveiðibátar eru líka með grásleppuleyfi sem lengir tímann sem þeir eru í notkun. Bátur sem er í rekstri allt árið getur nýtt fjárfestinguna betur en lítill bátur sem aðeins er gerður út hluta úr ári og borgar þ.a.l. breytinguna upp hraðar.
Eitt sem þarf að taka með inn í reikninginn er að strandveiðikerfið er lokað kerfi. Því er hægt að hanna strandveiðikerfið þannig að það vinni með þessari hugsun og geri notkun hreinorkubáta hagkvæmari valkost. Með skattalækkunum fyrir báta sem keyra að hluta eða öllu leyti á rafmagni eða öðrum grænum orkugjöfum, auk aflaívilnana, er hægt að auka verulega við fjárhagslegan ávinning við umbreytinguna.
Hver er áætlaður sparnaður í rekstrarkostnaði við breytinguna?
Í dag er olíukostnaður mjög mismunandi eftir bátum, staðsetningu og aksturslagi. Munurinn getur verið tífaldur milli báta á vertíð. Gróflega má áætla að eldsneytiskostnaðurinn minnki um helming við breytinguna.
Endanlegt verð á rafmagni fyrir báta liggur ekki fyrir en hluti af vinnunni hjá Grænafli er samtal við orkusala um þau mál.
Er von á fjárstuðningi/niðurgreiðslum frá stjórnvöldum fyrir breytingar á bátum?
Umræða er hafin við stjórnvöld um einhvers konar stuðningskerfi og gagnkvæmur skilningur á þörfinni fyrir slíkt.
Styrkirnir þyrftu að vera tvenns konar. Annars vegar að þekkingin sé til staðar svo hægt sé að tryggja framboðið með því að breyta bátum hér á landi og hins vegar að styðja bátaeigendur við kaup eða breytingar á sínum bátum.
Þurfa reglur um strandveiðar að breytast til að rafvæðing gangi upp?
Já, það þarf bæði reglubreytingar og viðhorfsbreytingar. Ívilnun þarf sömuleiðis að aukast ef hraða á orkuskiptunum. Í dag má veiða 100 kg meira í túr ef veitt er á 100% rafmagni í stað olíu. Þessi lagabreyting varð fyrir nokkrum árum en enn hefur ekkert reynt á hana því það er enginn á 100% rafmagni.
Almennt er þörf á heilsteyptara kerfi þar sem fjárfestingarstuðningur, reglur og uppbygging hleðsluinnviða vinna saman.
Gildir 100 kg viðbótaraflinn aðeins fyrir báta sem eru 100% rafknúnir eða einnig tvinnbáta?
Núverandi lagaákvæði miðar við báta sem ganga alfarið fyrir rafmagni, en óljóst er hvernig það eigi við um hybrid-báta sem geta siglt heilar veiðiferðir eingöngu á rafmagni. Búið er að leggja til við stjórnvöld að bætt verði við lögin að ívilnunin eigi við báta sem séu „að hluta eða öllu leyti“ á rafmagni.
Það verður t.d. ekkert óalgengt að bátur sé með hybrid-kerfi og díselmótor sem varaafl, þótt meirihluti túranna sé eingöngu á rafmagni. Fær hann þá bara ívilnun fyrir þá túra en ekki hina? Þá vakna spurningar um hvernig eigi að mæla og staðfesta raunverulega olíunotkun. Þetta þarf að einfalda og skýra í lögunum.
Orkuskot er fundaröð Austurbrúar þar sem fjallað er um orkutengd málefni á aðgengilegan og hagnýtan hátt. Alls verða haldnir fimm fundir á Austurlandi haustið 2026. Meðal viðfangsefna eru rafvæðing smábáta, orkuöflun og orkusjálfstæði, rafmagnsreikningurinn, þriggja fasa væðing og orkuskipti í bílasamgöngum.
Upptökur af erindum fundanna og samantektir á helstu spurningum verða birtar á miðlum Austurbrúar.
Nánari upplýsingar um fundaröðina og dagskrá hennar má finna á viðburðasíðu Orkuskots.
Frá stofnun hefur Austurbrú unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar, markaðssetningar, atvinnuþróunar og fræðslu. Kynntu þér nýjustu tíðindin!
Skoða fréttasafn