Rúmlega 20 manns frá Íslandi, Noregi, Grænlandi og Orkneyjum tóku þátt í vinnustofu um fæðuöryggi og sjálfbærni í matvælaframleiðslu sem haldin var á Breiðdalsvík og Hallormsstað í síðustu viku.
Vinnustofan var hluti af norræna samstarfsverkefninu FLORA um fæðuöryggi, sem hleypt var af stokkunum fyrir réttu ári. Austurland er fulltrúi Íslands í verkefninu sem byggir á því að viðhalda og virkja hefðir í matvælaframleiðslu sem lið í að auka fæðuöryggi.
FLORA hlaut styrk frá NAPA, norrænu menningarstofnuninni á Grænlandi, og tekur Austurbrú þátt í verkefninu fyrir Íslands hönd. Auk Íslands taka Grænland, Færeyjar, Norður-Noregur og Orkneyjar þátt.
Sjálfbærni í matvælaframleiðslu var yfirskrift vinnustofunnar. Þar var rætt um gamlar og nýjar leiðir til að geyma mat, hvernig tengja mætti framleiðendur betur og brúa bilið milli stærstu og minnstu framleiðendanna, hvaða leiðir væru færar til að koma vörum minni framleiðenda á framfæri og nýsköpun í matvælaframleiðslu.
Sjálfbærninámið á Hallormsstað var í forgrunni en þar elduðu þátttakendur sinn eigin mat úr lítt nýttu hráefni, svo sem hreindýrshjörtum, reyniblómum og mysu. Einnig var farið í Vallanes þar sem rætt var um lífræna ræktun og vöruþróun. Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði var heimsótt þar sem síld streymdi inn til vinnslu.
Á Breiðdalsvík voru kynningar á fiskvinnslunni Goðaborg og Beljanda brugghúsi. Auk þess voru kynnt áhugaverð verkefni um samfélagsgarða og ræktun í Norður-Noregi, veiði og stuðning við frumkvöðla á Grænlandi og samvinnufélög og beina sölu smáframleiðenda á Orkneyjum, svo fátt eitt sé nefnt.
Austurbrú hélt utan um vinnustofuna þar sem erlendu gestirnir, nemendur og kennarar frá Hallormsstað og Eygló Björk Ólafsdóttir frá Vallanesi tókust á við þær áskoranir sem matvælaframleiðendur, einkum í dreifbýli, standa frammi fyrir. Ekki síður var fjallað um geymslu matvæla og nýsköpun sem þætti í að tryggja fæðuöryggi.
FLORA stendur yfir í þrjú ár. Á þeim tíma verða haldnar vinnustofur í öllum þátttökulöndunum þar sem unnið verður með arfleifð í matarmenningu og hvernig megi byggja á henni til að þróa nýjar afurðir. Markmiðið er að varðveita hefðir um leið og þær eru gerðar sýnilegri og aðgengilegri fyrir nýjar kynslóðir.
FLORA byggir á sama grunni og verkefnið Sjávarföll, sem Austurbrú hefur unnið að með styrk frá Byggðastofnun, og snýst um vöruþróun sem byggir á matarhefðum í sjávarútvegi.
Frá stofnun hefur Austurbrú unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar, markaðssetningar, atvinnuþróunar og fræðslu. Kynntu þér nýjustu tíðindin!
Skoða fréttasafn