Ársfundur Austurbrúar var haldin í Valaskjálf, Egilsstöðum, fimmtudaginn 3. júní. Dagskráin var hefðbundinn en fram kom m.a. að rekstrarniðurstaða síðasta árs hefði verið jákvæð um tæpar 24 milljónir króna. Þá var umræða um menntamál í landshlutanum fyrirferðarmikil og tóku rektorar HA og HR báðir þátt í umræðum.
Fram eftir vori var óljóst hvort fundurinn yrði haldinn í fjarfundi en sem betur fer tókst að halda fundinn með „eðlilegum“ hætti. Dagskráin var hefðbundin en þess má geta að Magnús Jónsson frá KPMG fór yfir ársreikninga Austurbrúar og þar kom fram að rekstrarniðurstaða var jákvæð um 23,6 milljónir króna og að eigið fé væri jákvætt um tæpar 67 milljón króna.
Einar Már Sigurðarson, formaður stjórnar Austurbrúar og SSA, kynnti skýrslu stjórnar og í máli hans kom m.a. fram að nýsköpun og þróun á öllum stigum samfélags sé forsenda vaxtar og eflingar Austurlands. „Mikilvæg skref voru tekin á árinu þegar undirritaður var samningur á milli Austurbrúar og menntamálaráðuneytisins um kennslu á háskólastigi á Austurlandi,“ sagði Einar Már.
Málefni háskólastarfs voru tekin til sérstakrar umræðu á fundinum. Gauti Jóhannesson, forseti bæjarstjórnar Múlaþings, sagði frá markmiðum sveitarfélagsins um framhaldsmenntun og möguleikum um samstarf við University of the Highlands and Islands í Skotlandi sem nú er í bígerð. Sæunn Stefánsdóttir kynnti starf Rannsóknarsetra HÍ en þau eru að verða tíu talsins, þar af tvö á Austurlandi – eitt á Héraði og annað á Breiðdalsvík – en fyrsta rannsóknasetrið var einmitt stofnað á Hornafirði árið 2009.
Eins og fram hefur komið munu HR og HA standa saman að kennslu frumgreinadeildar HR á Austurlandi í haust og mættu rektorar Háskólans í Reykjavík og Háskólans á Akureyri á fundinn.
Hvatningarstyrkur - sjá fréttAri Kristinn Jónsson, rektor HR, sagði að staðbundið háskólanám, eins og væri í undirbúningi á Austurlandi, gríðarlega mikilvægt fyrir þróun samfélagsins. Háskólastofnanir væru hluti af því og mikilvægar þegar kæmi að atvinnuuppbyggingu og nýsköpun.
Undir þetta tók Eyjólfur Guðmundsson, rektor HA, og minnti á að umræða um jafnrétti kynjanna gagnvart námi og menntun hefði opnað augu fólks fyrir aðgengi nemenda á landsbyggðinni að háskólanámi. Heimsfaraldurinn hefði opnað gríðarlega möguleika á ýmis konar námi og atvinnu og í máli hans kom m.a. fram að tveir þriðju nemenda HA stunduðu fjarnám af einhverju tagi.
Dagmar Ýr Stefánsdóttir, yfirmaður um samskipta- og samfélagsmála hjá Alcoa, lýsti fyrir hönd atvinnulífsins á Austurlandi yfir mikilli ánægju með samstarf sveitarfélaga, atvinnulífs og háskólanna við uppbyggingu háskólanáms á Austurlandi sem hæfist í haust.
Í beinu framhaldi af ársfundinum var skrifað undir samning um námsstyrki frá atvinnulífinu á Austurlandi.
Frá stofnun hefur Austurbrú unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar, markaðssetningar, atvinnuþróunar og fræðslu. Kynntu þér nýjustu tíðindin!
Skoða fréttasafn