Menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi, BRAS, lauk á dögunum eftir þrjár viðburðaríkar vikur þar sem sköpunargleði, leikur og fjölbreytt menningarstarf voru í fyrirrúmi. Hátíðin var nú haldin í níunda sinn og bar yfirskriftina „Undur og furða“.
Dagskráin var fjölbreytt og þátttaka góð víðs vegar um Austurland. Börn og ungmenni fengu meðal annars að kynnast sirkuslistum, skapa eigin bækur, skrifa sögur, leika sér með leir og pappamassa, kanna heim rafrænnar tónlistar og njóta leiksýninga. Á vinsælustu viðburðina mættu hátt í 300 börn og ungmenni og um 270 skrímsli urðu til í tengslum við verkefnið Sæskrýmslabúrið.
Í ár var stigið nýtt skref í þróun BRAS þegar Menningarstofa Fjarðabyggðar og menningarfulltrúar Múlaþings tóku að sér skipulagningu og framkvæmd hátíðarinnar í samstarfi við Austurbrú, sem hefur komið að hátíðinni frá upphafi. Breytt fyrirkomulag tókst vel og skapaði góðan grundvöll fyrir áframhaldandi samstarf.
Austurbrú þakkar öllum sem komu að hátíðinni fyrir gott samstarf og ekki síst börnunum og ungmennunum sem tóku þátt og gáfu BRAS líf með sköpunargleði sinni og hugmyndaflugi.
Frá stofnun hefur Austurbrú unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar, markaðssetningar, atvinnuþróunar og fræðslu. Kynntu þér nýjustu tíðindin!
Skoða fréttasafn