Íbúar Stöðvarfjarðar og fulltrúar Fjarðabyggðar fjölmenntu á íbúafund í grunnskólanum sl. fimmtudagskvöld þar sem drög að verkefnisáætlun fyrir verkefnið Sterkan Stöðvarfjörð lágu fyrir til umræðu og samþykktar. Um nokkurt skeið hefur verkefnisstjóri, Valborg Ösp Árnadóttir Warén, ásamt verkefnisstjórn unnið að mótun verkefnisáætlunarinnar á grunni skilaboða íbúaþings sem haldið var í mars sl. og stöðugreiningar verkefnisstjórnar.
Í verkefnisáætlun Sterks Stöðvarfjarðar er framtíðarsýn íbúa sett fram um byggðarlagið ásamt fjórum meginmarkmiðum og starfsmarkmiðum þeim tengdum. Meginmarkmið verkefnisins eru eftirfarandi:
Kristján Þ. Halldórsson, formaður verkefnisstjórnar og fulltrúi Byggðastofnunar, setti fundinn og bauð fundargesti velkomna. Hann hvatti íbúa til virkrar þátttöku í verkefninu og óskaði eftir frjóum umræðum um verkefnisáætlunina og málefni byggðarlagsins. Valborg Ösp kynnti því næst drög að verkefnisáætluninni og útskýrði vinnulag umræðuhópa á fundinum.
Íbúum var skipt í fjóra hópa. Hver þeirra rýndi meginmarkmiðin nánar og þau starfsmarkmið sem þeim tengdust. Í lok fundar höfðu allir þátttakendur haft tækifæri til að setja fram ábendingar eða athugasemdir við öll markmiðin sem birtast í verkefnisáætluninni, meginmarkmið jafnt sem starfsmarkmið. Þá skrifuðu íbúar sig á lista yfir áhugasama aðila um framgang einstakra markmiða eftir því sem áhugi hvers og eins bauð. Þessir hópar eru mikilvægir fyrir verkefnisstjóra til skrafs og ráðagerða í framhaldinu.
Ásta og hennar fólk í Brekkunni bauð upp á matarmikla grænmetissúpu og brauð að loknum umræðum í hópum.
Eftir góðan kaffisopa í lok fundar var öllum fundargestum safnað á sal til umræðu um verkefnisáætlunina. Fundargestir veittu verkefnisstjórninni umboð til að ljúka formlega við verkefnisáætlun Sterks Stöðvarfjarðar á grunni þeirra athugasemda sem fram komu í umræðuhópunum. Verkefnisáætlunin erlifandi skjal sem á eftir að taka breytingum eftir því sem verkefninu mun vinda fram. Gert er ráð fyrir því að íbúar rýni verkefnisáætlunina einu sinni á ári á íbúafundi og þá munu e.t.v. ný starfsmarkmið bætast við eða önnur taka breytingum eftir atvikum.
Valborg Ösp gerði svo grein fyrir næstu skrefum í verkefninu. Hún hvatti íbúa m.a. til að hafa samband við sig og bauð fram ráðgjöf og aðstoð við gerð umsókna. Hún fór yfir umsóknarferlið í Frumkvæðissjóð Sterks Stöðvarfjarðar en nú hefur verið opnað fyrir umsóknir. Íbúar eru hvattir til að koma góðum hugmyndum að verkefnum í framkvæmd og skoða þá möguleika sem í boði eru til að sækja um stuðning til þeirra.
Finna mátti kraft í íbúum Stöðvarfjarðar sem sýndu verkefninu mikinn áhuga á fundinum með virkri þátttöku. Það verður sannarlega fróðlegt að sjá hvernig verkefninu mun vinda fram á næstu misserum.
Frumkvæðissjóður Sterks StöðvarfjarðarMyndir: Kristján Þ. Halldórsson, Byggðastofnun
Frá stofnun hefur Austurbrú unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar, markaðssetningar, atvinnuþróunar og fræðslu. Kynntu þér nýjustu tíðindin!
Skoða fréttasafn