Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, undirritaði í gær samkomulag við Múlaþing um þriggja ára verkefni til að byggja upp atvinnulíf á Seyðisfirði, sem stendur frammi fyrir margþættum vanda í kjölfar hamfaranna í desember. Ríkisstjórnin leggur til 215 milljónir króna til að styðja við þróun atvinnutækifæra og nýsköpun, greiða fyrir því að óvissa verði leidd til lykta og einyrkjum og minni fyrirtækjum veitt ráðgjöf.
Sigurður Ingi heimsótti Seyðisfjörð í gær af þessu tilefni, fékk leiðsögn um svæðið og ræddi við heimafólk áður en gengið var til undirritunar á veitingastaðnum Öldunni á Seyðisfirði. Auk ráðherra skrifuðu Björn Ingimarsson, sveitarstjóri Múlaþings, og Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar undir samkomulagið.
Verkefnisstjórn er skipuð tveimur fulltrúum Múlaþings, tveimur fulltrúum íbúa á Seyðisfirði og einum fulltrúa Austurbrúar. Í henni sitja Gauti Jóhannsson (formaður) og Stefán Bogi Sveinsson fyrir Múlaþing, Ólafur Hr. Sigurðsson og Berglind Harpa Svavarsdóttir fyrir heimastjórn Seyðisfjarðar og Einar Már Sigurðarson fyrir Austurbrú. Fjárframlag ríkisins mun nema 105 milljónum kr. í ár en 55 milljónum kr. hvort ár, 2022 og 2023. Byggðastofnun mun veita ráðgjöf og styðjast þar við reynslu sína við uppbyggingu atvinnulífs. Múlaþing og Austurbrú munu leggja til fjármagn, vinnuframlag og aðstöðu.
„Það er eindreginn vilji ríkisstjórnarinnar að veita samfélaginu á Seyðisfirði nauðsynlegan stuðning eftir hinar miklu hamfara á staðnum. Mikilvægt er að hefja þegar í stað vinnu viðað styðja atvinnulífið og þar með samfélagið í bænum. Samkomulagið kveður á um góðan fjárstuðning en það rammar einnig inn mikilvægt samstarf við heimafólk um uppbygginguna. Það hefur verið lærdómsríkt að koma í heimsókn til Seyðisfjarðar, fyrst skömmu eftir hamfarirnar, en ekki síður í dag þegar uppbyggingin er hafin,“ segir Sigurður Ingi.
„Þetta er mikilsverður stuðningur við byggðarlag sem stendur frammi fyrir miklum áskorunum. Íbúar Seyðisfjarðar hafa sýnt þrautseigju og styrk í þessum hamförum og ég er sannfærður um þeir munu nýta sér þennan stuðning til að renna traustum stoðum undir atvinnulífið til framtíðar,“ segir Björn Ingimarsson, sveitarstjóri Múlaþings.
„Okkar verkefni er nú, í samvinnu við heimamenn, að móta einstaka þætti þessa verkefnis, og sjá til þess að það fari hratt og vel af stað,“ segir Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar en stofnunin heldur utan um verkefnið.
Markmið verkefnisins er að aðstoða við að leiða til lykta þau stóru óvissumál sem við blasa og jafnframt að bjóða einyrkjum og minni fyrirtækjum uppá rekstrarráðgjöf og styðja við nýsköpun og þróun atvinnutækifæra á Seyðisfirði. Lögð er áhersla á að virkja frumkvæði íbúa og annarra haghafa sem tengjast byggðarlaginu. Meðal annars og ekki síst er verkefninu ætlað að hvetja íbúa og fyrirtæki til að nýta sér kosti þess stoðkerfis sem rekið er af hálfu ríkis og sveitarfélaga.
Urður Gunnarsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri hjá Austurbrú og mun sinna þessu verkefni fyrir hönd stofnunarinnar. Hún hefur starfað á fjölmiðlum, var lengi fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins auk þess sem hún hefur unnið erlendis fyrir Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu í verkefnum tengdum kosningaeftirliti og lýðræðis- og mannréttindamálum. Urður mun hafa aðsetur á starfsstöð Austurbrúar á Egilsstöðum en er sjálf búsett í Fljótsdal.
Frá stofnun hefur Austurbrú unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar, markaðssetningar, atvinnuþróunar og fræðslu. Kynntu þér nýjustu tíðindin!
Skoða fréttasafn