Í tilefni þess að 30 ár eru síðan að samningur um Evrópska efnahagssvæðisins (EES) tók gildi, og veitti Íslandi aðgang að auknum tækifærum til samstarfs í Evrópu, mun Evrópurútan fara hringinn um landið í september þar sem vakin verður athygli á árangri af Evrópuverkefnum í heimabyggð og tækifærum til framtíðar í alþjóðasamstarfi.
Evrópurútan mun mæta á Reyðarfjörð miðvikudaginn 18. september og bjóða íbúum til fundar og samtals um tækfæri í heimabyggð til alþjóðasamstarfs í gegnum fjölmargar samstarfsáætlanir Evrópusambandins.
Fundurinn verður haldinn í Fróðleiksmolanum frá 15 til 17.
Evrópurútan er skipulögð af Rannís sem hefur umsjón með öllum helstu samstarfsáætlunum á sviði menntunar, menningar, vísinda og fyrirtækjasamstarfs og mun á hringferð sinni um landið veita upplýsingar um:
Við hvetjum öll til að mæta of kynna sér tækifæri til alþjóðasamstarfs til framtíðar fyrir sína heimabyggð.
Óskað er eftir skráningu á viðburðina fyrir áætlun veitinga á hverjum stað fyrir sig.
Frá stofnun hefur Austurbrú unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar, markaðssetningar, atvinnuþróunar og fræðslu. Kynntu þér nýjustu tíðindin!
Skoða fréttasafn