Ný sóknaráætlun fyrir Austurland 2025-2029 hefur tekið gildi en hún var undirrituð 28. janúar af samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Eyjólfi Ármannssyni, Loga Einarssyni menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Jóhanni Páli Jóhannssyni, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og Dagmar Ýr Stefánsdóttur, framkvæmdastjóra Austurbrúar.
„Sóknaráætlanir landshluta hafa sannað gildi sitt í gegnum tíðina,“ segir samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. „Tilgangurinn er að stórefla byggðir landsins með virkri þátttöku heimafólks. Mikilvægt er að fólkið sem þekkir best til aðstæðna í sinni heimabyggð taki ákvarðanir um nýtingu fjármuna sem varið er til einstakra landshluta. Einungis þannig tryggjum við framgang sóknaráætlana og eflum byggðaþróun í landinu.“
Sóknaráætlunin er nú tengd Svæðisskipulagi Austurlands 2022-2044 og þjónar sem aðgerðaráætlun þess fyrir næstu fimm ár. Hún mótar stefnu fyrir þróun Austurlands og byggir á greiningu á stöðu svæðisins, með áherslu á sjálfbæra auðlindanýtingu, eflingu samfélagsins og aukin sóknarfæri í atvinnulífi og nýsköpun.
Frétt á vef Stjórnarráðsins„Sóknaráætlunin er verkfæri til að efla Austurland, þannig að fólk vilji búa, starfa og heimsækja svæðið. Fyrir okkur Austfirðinga er nauðsynlegt að setja skýr markmið og meta stöðuna reglulega. Það styrkir samstöðu okkar og gerir okkur kleift að tala einni röddu út á við,“ segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar.
Alls eru 39 markmið í sóknarætluninni sem varða allt frá samgöngum, loftslags- og heilbrigðismálum, til menntunar, nýsköpunar og ferðaþjónustu. Dæmi um aðgerðir eru:
• Bæta almenningssamgöngur innan fjórðungs og til nærliggjandi svæða
• Tryggja fjarskipti um ljósleiðara og farsíma
• Draga úr magni úrgangs og auka endurnotkun og endurvinnslu
• Uppbygging Egilsstaðaflugvallar sem alþjóðaflugvallar
• Fjölga Loftbrúarleggjum og bæta útfærslu
• Efla fjar- og staðkennslu í háskólanámi
• Úrbætur í geðheilbrigðismálum
• Samþætta þjónustu um farsæld barna
• Auka stuðning við nýsköpun, byggja upp samvinnuhúsnæði í sem flestum byggðalögum
• Bæta aðgengi að austfirsku hráefni og matvælum
• Auðvelda kynslóðaskipti í rekstri, einkum í dreifbýli
• Átak í að dreifa ferðafólki betur um svæðið
• Fjölga útskotum og bæta vetrarþjónustu við áfangastaði
• Efla faglegt starf safna, nýta húsnæði þeirra betur
Sóknaráætlunin felur í sér lýsingu á stöðu hvers málaflokks, ásamt tölulegum gögnum og greiningu á styrkleikum, veikleikum, tækifærum og áskorunum. Hún er afrakstur víðtæks samráðs við sveitarstjórnarfólk, stofnanir, fyrirtæki og íbúa Austurlands. Tillögur voru ræddar á vinnustofum og opnum fundum og þróaðist áætlunin í takt við þau sjónarmið sem fram komu eftir því sem verkefnið þróaðist.
Austurbrú, fulltrúar sveitarfélaga og stjórn SSA munu fylgja eftir aðgerðum sóknaráætlunar með því að vinna markmiðin inn í starfsáætlanir Austurbrúar og sveitarfélaganna eftir því sem við á.
Mynd efst: Fulltrúar landshlutasamtaka sveitarfélaganna auk fulltrúa stjórnvalda.
Sóknaráætlun Austurlands 2025-2029Frá stofnun hefur Austurbrú unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar, markaðssetningar, atvinnuþróunar og fræðslu. Kynntu þér nýjustu tíðindin!
Skoða fréttasafn