Komin er góður skriður á verkefni sem snýst um að setja á laggirnar nýtingarmiðstöð á Vopnafirði og vottað vinnslurými sem hefur það hlutverk að bæta nýtingu og skapa verðmæti úr afurðum af sjó og landi. Áhersla verður lögð á nýsköpun, þekkingaryfirfærslu og víðtækt samstarf. Verkefnið hófst með þarfagreiningu sem Austurbrú lét gera fyrir tilstilli styrks frá umhverfisráðuneytinu en nú er búið að ráða starfsmann og byrjað að vinna að endurbótum á húsnæðinu sem nýtingarmiðstöðin mun koma til með að verða í.
Í undirbúningsstjórn eru fulltrúar frá Vopnafjarðarhreppi, BRIM, Austurbrú og umhverfis-, orku og loftlagsráðuneyti, en einnig munu koma að verkefninu Eygló á Austurlandi ásamt háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðueyti. Verið er að vinna að formlegri stofnun félagsins, en það mun verða byggt að hluta á verkefninu „Vopnfirska matargatið“ og vera með stjórn og verkefnastjórn sem vinna munu í samstarfi með verkefnastjóra nýtingarmiðstöðvarinnar. Verkefnið er unnið í samstarfi Vopnafjarðarhrepps, Austurbrúar, umhverfisráðuneytisins og Brims á Vopnafirði og eiga allir þessir aðilar fulltrúa í stjórn þess.
Á fundi undirbúningsstjórnar þann 20. september var samþykkt að ráða Rögnvald Þorgrímsson sem verkefnastjóra en hann hóf störf 1. október. Brýnustu verkefnin fyrst um sinn eru að gera áætlanir um nauðsynlegar endurbætur á húsnæði, kynna verkefnið fyrir væntanlegum samstarfsaðilum og sækja um styrki til frekari uppbyggingar. Nýtingarmiðstöð á Vopnafirði mun verða í afmörkuðu húsnæði á jarðhæð í fyrrverandi Sláturhúsi Vopnafjarðar og með skrifstofu- og kaffistofu á annari hæð en aðstaða í húsnæðinu er framlag BRIMS til verkefnisins.
Í lokaskýrslu Örnu Bjargar Bjarnardóttur sem gerði fýsileikakönnun um verkefnið segir meðal annars: „Nýtingarmiðstöð kemur til með að auka tækifæri til nýsköpunar, fjölga atvinnutækifærum, hækka menntunarstig, stuðla að sjálbærri þróun í víðum skilningi þess orðs. Nýtingarmiðstöðin mun þannig leggja lóð á vogaskálar við að skapa þekkingu til yfirfærslu á önnur svæði og efla þannig hringrásarhagkerfið langt út fyrir Vopnafjörð.“
Gerðar eru miklar væntingar til uppbyggingar og reksturs á nýtingarmiðstöð á Vopnafirði en þetta er nýsköpunarverkefni sem hefur mikla möguleika til vaxtar og þróunar til bæði skamms tíma og lengri framtíðar.
Frá stofnun hefur Austurbrú unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar, markaðssetningar, atvinnuþróunar og fræðslu. Kynntu þér nýjustu tíðindin!
Skoða fréttasafn