„Sóknaráætlunin er verkfæri til að efla Austurland, þannig að fólk vilji búa, starfa og heimsækja svæðið. Fyrir okkur Austfirðinga er nauðsynlegt að setja skýr markmið og meta stöðuna reglulega. Það styrkir samstöðu okkar og gerir okkur kleift að tala einni röddu út á við,“ segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar.

Alls eru 39 markmið í sóknarætluninni sem varða allt frá samgöngum, loftslags- og heilbrigðismálum, til menntunar, nýsköpunar og ferðaþjónustu. Dæmi um aðgerðir eru:

• Bæta almenningssamgöngur innan fjórðungs og til nærliggjandi svæða
• Tryggja fjarskipti um ljósleiðara og farsíma
• Draga úr magni úrgangs og auka endurnotkun og endurvinnslu
• Uppbygging Egilsstaðaflugvallar sem alþjóðaflugvallar
• Fjölga Loftbrúarleggjum og bæta útfærslu
• Efla fjar- og staðkennslu í háskólanámi
• Úrbætur í geðheilbrigðismálum
• Samþætta þjónustu um farsæld barna
• Auka stuðning við nýsköpun, byggja upp samvinnuhúsnæði í sem flestum byggðalögum
• Bæta aðgengi að austfirsku hráefni og matvælum
• Auðvelda kynslóðaskipti í rekstri, einkum í dreifbýli
• Átak í að dreifa ferðafólki betur um svæðið
• Fjölga útskotum og bæta vetrarþjónustu við áfangastaði
• Efla faglegt starf safna, nýta húsnæði þeirra betur

Nánari upplýsingar

Urður Gunnarsdóttir

Urður Gunnarsdóttir

864 9974 // [email protected]


Dagmar Ýr Stefánsdóttir

862 1084 // [email protected]

Fleiri fréttir

Frá stofnun hefur Austurbrú unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar, markaðssetningar, atvinnuþróunar og fræðslu. Kynntu þér nýjustu tíðindin!

Skoða fréttasafn