Á hverju ári leggur stýrihópur BRAS menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi, könnun fyrir alla sem á einhvern hátt tóku þátt í hátíðinni.
Könnunin er send í leik-, grunn-, tónlistar-, og framhaldsskóla, til menningarfulltrúa sveitarfélaga, í menningarmiðstöðvar og stofnanir. Auk þess er henni dreift á samfélagsmiðlum og á heimasíðum sveitarfélaga. Mikilvægt er að fá sem flest svör, til að halda áfram að byggja næstu hátíð á fyrri reynslu og gera enn betur í því að bjóða börnum og ungmennum á Austurlandi upp á lista- og menningarviðburði í heimabyggð.
Við vonumst eftir því að sem flestir sjái sér fært að taka þátt og aðstoða BRAS við að þróa hátíðina enn frekar.
KönnunFrá stofnun hefur Austurbrú unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar, markaðssetningar, atvinnuþróunar og fræðslu. Kynntu þér nýjustu tíðindin!
Skoða fréttasafn